Heldur höfum við ákveðið að gera nauðsynlegar breytingar til þess að....
VAXA ENN MEIRA
Og til þess að gera það þá ætlum við að loka
verslun okkar í Fjölskyldulandi.
„Ha? í alvöru?“
Í alvöru.
*Mynd af fyrstu uppsettningunni okkar í verslunarkjarna í Kópavogi. Okkar fyrsta skref ÚR netheiminum og í raunheiminn!*
Afhverju?
Langflestir viðskiptavinir okkar panta í gegnum netið og því þykir okkur liggja beinast við að beina orkunni okkar akkúrat þaðan sem pantanirnar koma...
Á netið!
*Mynd af fyrstu alvöru verslun okkar í Aríu þegar við vorum enn að koma okkur fyrir. Ó hvernig þetta horn stækkaði!*
Við höfum rekið verslun með ágætis árangri í þrjú ár og á þeim tíma höfum við verið í fjórum húsnæðum.
Þessi tími hefur verið magnaður. Að reka verslun hefur verið ótrúlega GAMAN en á sama tíma mjög krefjandi. Við höfum lært það að verslunarrekstur er tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni sem við stöllur höfum hvorugar nægilega mikinn tíma fyrir einmitt núna í lífinu okkar.
Í staðinn viljum við losa þennan tíma og eyða dýrmætu fjármagni sem annars fer í leigu og rekstur verslunar í að bæta lagerinn og þjónustuna okkar til muna *pssst við erum að taka inn nýtt merki... endilega fylgist með*.
Með meiri tíma fáum við svigrúm til að sinna því sem við höfum botnlausa ástríðu fyrir:
Að breiða út boðskapinn um ágæti taubleyja og skapa markaðsefni sem upplýsir og veitir innblástur til þess að velja fjölnota.
Við lokum versluninni okkar í Fjölskyldulandi en verðum margfalt sýnilegri með bættari námskeiðum, öflugri markaðssetningu, reglulegri viðburðum og „pop-ups“ um land allt með hjálp taubleyjusérfræðinganna okkar - sem eru 10 talsins staðsettir víðsvegar um landið.
*Mynd af stoltum verslunareiganda í fínu búðinni okkar í fjölskyldulandi*
Allar stórar breytingar eru ógnvekjandi. Við höfum farið fram og tilbaka í marga mánuði og velt þessu vandlega fyrir okkur, fundað og átt samtöl við ýmsa aðila sem hafa gefið okkur frábær ráð og endurgjafir.
Niðurstaðan er sú, að fyrir okkur er betra að færa reksturinn alfarið yfir á netið og berum við fullt traust til þeirrar ákvörðunar!
Við höfum fundið vinnurými þar sem við munum halda lager og pakka pöntunum tímabundið áður en við færum okkur endanlega í vöruhús. Þetta skref er risastórt en við erum ekkert smá spenntar að taka það loksins.
Verslun okkar mun loka 31.oktober en þangað til verður hægt að heimsækja okkur í Fjölskyldulandi! Eftir það verður einungis hægt að kaupa af netinu og á viðburðum.
Þökkum fyrir allar heimsóknirnar og minningarnar sem við höfum skapað með ykkur í búðunum okkar fjórum á 3 árum! Nú er tími til þess að takast á við næsta vaxtarkypp!
Við léttum á lager fyrir flutninga úr Fjölskyldulandi
Valdar vörur verða á sérstöku rýmingarafslætti út mánuðinn. Hjálpaðu okkur við flutninganna og gerðu góð kaup!
Skoðaðu lagersöluna hér - hún verður gangi til 31.okt
Það er alltaf hægt að treysta á vingjarnlega þjónustu í Cocobutts. Þær leiðbeina afskaplega vel ef taubleiulífið er eitthvað að klikka og augljóslega vinna hörðum höndum að framúrskarandi þjónustu og vöruúrvali. Alltaf hægt að finna eitthvað sem hentar.
Stelpurnar í cocobutts eru dásamlegar og taka alltaf vel á móti manni og veita manni úrvals þjónustu, ég fékk prívat kennslu á taubleyjur inní búð þegar ég koma og keypti :)
Hef verslað nokkuð oft við cocobutts.is og alltaf fengið frábæra þjónustu!
Lenti í smá veseni með eina bleyjuna og þær skiptu henni strax út fyrir nýja. Hef líka sent á þær fyrirspurnir og alltaf fengið góð ráð!
Mæli svo sannarlega með cocobutts
Tók nýburapakkann á leigu sem hefur reynst okkur mjög vel. Úrvalið í pakkanum er fjölbreytt og hefur hjálpað við að skýra hvaða týpur af bleyjum henta við ólíkar aðstæður.
Þjónustan og viðmótið hjá Apríl og Elínu er til fyrirmyndar, en þær eru svo jákvæðar og hjálpsamar að það smitar út frá sér.