Fara yfir í aðalefni
Mini nýburableyjupakki
Mini nýburableyjupakki

Mini nýburableyjupakki

5.900 kr
Virðisaukaskattur innifalinn.
  • 1 mánuður (30 dagar)

Mini nýburaleigan er sniðug leið til þess að nota taubleyjur meðfram einnota fyrstu tvo mánuðina eða ef brúa þarf bilið fyrsta mánuðinn ef foreldrar eiga taubleyjur sem passa ekki frá fæðingu. Mini nýburableyjupakkinn inniheldur eingöngu fitted bleyjur og skeljar. Við mælum einnig mjög mikið með að nota fitted bleyjurnar með ullarbuxunum frá Disana. En þá þyrfti að kaupa ullarbuxurnar sérstaklega.

Hvað er í leigupakkanum?

10x Fitted nýburableyjur með búster og flísrenning frá Little Lamb
3x Skeljar frá Little lamb til að nota með fitted bleyjunum.

    Verð 

    Hægt er að bóka nýburaleigupakkann í 30 daga.

    Verð
    30 dagar kr 5.900 í formi staðgreiðslu.

    Hvernig virkar þetta?

    • Á dagatalinu hér á síðunni geturðu séð þær dagssetningar sem nýburapakkinn er laus til leigu.
    • Þú getur hafið leiguna frá hvaða degi sem er merktur SVARTUR
    • Veldu upphafsdagssetningu og dagatalið velur sjálfkrafa næstu 30 daga og tekur þá daga frá fyrir þig á meðan þú gengur frá pöntuninni.
    • Þú staðgreiðir pöntunina. 
    • Við sendum þér leiðbeiningar í tölvupósti um hvernig skal meðhöndla bleyjurnar þegar þú hefur lokið við pöntun.

    Leiguskilmálar

    *Með því að bóka einhverja taubleyjupakka sem við höfum á leigu samþykkir leigutaki skilmála þessa.

    Almennt
    Cocobutts ehf. 
    Kt. 5407210410
    VSK númer 141839
    Ljósheimum 10, 104 Reykjavík
    info@cocobutts.is   

    Leigutaki tekur þær vörur á leigu sem eru í innihaldslýsingu hverju sinni

    Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að breyta innihaldi leigupakkanna án fyrirvara.

    Verð, skattar og gjöld
    Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Taubleyjuleigan fyrir nýbura er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.  

    Sendingarkostnaður og valmöguleikar
    Vefpóstur og/eða SMS er sent þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Verslunin er lokuð alla rauða daga né annað sé tekið fram.
    1. Fjölskylduland, Dugguvogi 4 - Opið 9:00-18:00 alla daga. Verð: 0 kr.
    2. Heimsending út um allt land með Íslandspósti eða Dropp. Vörur eru póstlagðar 2-5 dögum fyrir áætlaða afhendingu og jafnvel fyrr ef pakkinn skilast fyrr frá fyrri leigjanda. Afhending 1-3 virkir dagar. Verðið er breytilegt eftir verðskrá Póstsins og kemur fram við greiðslu.
    Afhending vöru
    Allar vörur eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest eða næsta virka dag ef greiðsla berst eftir klukkan 17:00. Þú getur fengið vörurnar sendar en ef þú kýst að sækja getur þú gert það án endurgjalds í verslun okkar, þitt er valið. 

    Kemur það upp að vara sé í útleigu eða geti ekki verið afhend á réttum tíma vegna einhverra ástæðna mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef afhendingardagssetning lendir á helgi eða á gulum eða rauðum degi áskiljum við okkur rétt til að seinka afhendingu eða póstlagningu til næsta virka dags.

    Verð og greiðsla
    1. Leiguverð og greiðsla
      Leiguverðið á nýburableyjupakka er breytilegt eftir hversu langt tímabil leigjandi velur. 1 mánuður kostar 5.900 kr og greiðist í formi staðgreiðslu á vef eða í verslun.
    2. Afbókun 
      Ef leigutaki afbókar með minna en viku fyrirvara fæst pöntunin ekki endurgreidd.
    3. Leigutímabil og greiðslur eftirstöðva
      -Leigutímabilið hvorki lengist né styttist þó leigjandi sæki pakkann seint.
      - Ef leigutaki hefur ekki greitt eftirstöðvarnar einni viku eftir að upphafsdagssetning hefst áskiljum við okkur rétt til að afbóka pöntunina og tilkynna pakkann lausan til leigu án þess að endurgreiða pöntunina.
    4. Leiðbeiningar
      Við sendum leiðbeiningar um hvernig skal meðhöndla pakkann eftir að lokagreiðsla hefur borist. 
    Endurgreiðslur og breytingar á bókun
    • Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að rukka fyrir einnar viku leigu sé ekki hætt við bókum með a.m.k. einnar viku fyrirvara
    • Breytingar á tímabili bókunnar má framkvæma með a.m.k. einnar viku fyrirvara. Ef leigutaki vill stytta leigutímann og skila pakkanum fyrr skal hann hafa samband við okkur með tölvupósti info@cocobutts.is með a.m.k. viku fyrirvara.
    • Mini nýburapakkinn fæst ekki endurgreiddur sé pakkanum skilað fyrr.
    Gildistími
    Gildistími samnings varir frá upphafsdegi leigu og þar til leigutaki skilar pakkanum. 


    Skyldur Cocobutts ehf
    • Gengur úr skugga um að innihald taubleyjupakkanna sé heilt, hreint og tilbúið til notkunar áður en þeir fara í útlán til viðskiptavina.
    • Gerir ástandsskoðun á taubleyjupökkum eftir hvern viðskiptavin.
    • Djúphreinsar bleyjurnar ef þörf er á því.
    Skyldur leigutaka
    • Að fara eins vel með varninginn og hann getur:
    • Þrífur bleyjurnar samkvæmt þvottaleiðbeiningum leigusala eða eins og segir til um á þvottaleiðbeiningum á varningi og sér til þess að ganga frá taubleyjunum samkvæmt leiðbeiningum leigusala áður en þær eru settar í þvott.
    • Skilar innihaldi pakkans hreinu og heilu og passar upp á að ekkert vanti í pakkann þegar honum er skilað.
    Bruni og roði
    • Cocobutts ehf ber ekki ábyrgð á bruna, roða, kláða eða öðrum heilsufarslegum kvillum  sem kunna að myndast vegna ofnæmis eða lélegrar þvottarútínu.
    • Cocobutts ehf mælist til að leigutaki þrífi bleyjurnar sjálfur áður en hann byrjar að nota þær þó þær kunni að vera hreinar við afhendingu. 
     Skemmdur eða týndur varningur
    • Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 20.000 kr. ef leigutaki skilar ekki taubleyjupakkanum eins og hann leggur sig og ekki tekst að ná sambandi við hann
    • Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 1500 kr. per varning sem tnist, skemmist eða skilast í slæmu ástandi sem ekki má rekja til slits vegna almennrar notkunar.
    • Leigusali áskilur sér rétt til þess að endurgreiða ekki þá daga sem leigutaki ntir ekki taubleyjupakkana ef eitthvað af ofangreindu á við.
    • Leigutaki ber ekki ábyrgð á sliti varningsins vegna almennrar notkunar.
    Trúnaður
    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.  

    Lög og varnarþing
    Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)

    *Með því að bóka einhverja taubleyjupakka sem við höfum á leigu samþykkir leigutaki skilmála þessa.

    Skil og afbókanir

    Pakkanum skal skilað eigi síðar en á uppgefinni skiladagssetningu. Ef leigjandi skilar pakkanum í pósti þá þarf hann að gera ráð fyrir 3-5 dögum sem það gæti tekið pakkann að komast til skila. 

    Þegar pakkanum hefur verið skilað í heilu lagi fær leigjandinn tryggingargjaldið endurgreitt.

    Customer Reviews

    Be the first to write a review
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)

    Karfan þín

    Karfan þín er tóm í augnablikinu.
    Smelltu hér til að halda áfram að versla.