Fara yfir í aðalefni

Hjálp, bleyjan mín lekur!

Það mun gerast fyrir okkur öll á einhverjum tímapunkti að bleyjan lekur - óháð því hvort að bleyjan sé úr taui eða einnota. 

Þegar kemur að taubleyjum þá er þetta yfirleitt vegna þess að bleyjan er ekki almennilega á barninu. Kíktu á þetta myndband hér til þess að sjá hvernig á að setja bleyju á barn.


Ef þú ert viss um að þetta er ekki mátuninni að kenna þá annað ýmislegt sem þú getur athugað:

  1. Þarf að haga innleggjum eitthvað? Þarftu mögulega að bæta við eða kaupa önnur innlegg fyrir þitt barn? Ofurpissarar þurfa t.d mögulega auka búster í sína bleyju. 
  2. Er fatnaðurinn of þröngur? Of þröng föt geta skapað þrýstingsleka. Passaðu upp á að t.d samfellur séu nógu rúmar fyrir taubleyjur. Við seljum framlengingar fyrir samfellur hér. 
  3. Þarf barnið tíðari skipti? Við mælum með því að börn í taui fái ferska bleyju á 2-3 tíma fresti en sum börn þurfa tíðari skipti. 
  4. Er bleyjan orðin vatnsheld? Gættu þess að það sé ekki mýkingarefni í þvottaefninu sem þú notar. Bossakrem með Zinc gera taubleyjur einnig vatnsheldar. 
  5. Er uppsafnað þvottaefni í innleggjunum? Sumir foreldrar gæta þess ekki að setja auka skol eftir aðalþvottin. Þetta getur valdið því að það þvottaefni safnist í innleggjunum yfir einhvern tíma og "fyllast" og þau hætta að halda vökva.  Ef þér líður eins og bleyjurnar einfaldlega virka ekki lengur þá skaltu henda þeim í góða djúphreinsun og bæta svo auka skoli eftir aðalþvottinn framvegis og sjá hvort að ástandið lagast ekki. 

    Ef ekkert af þessu virkar þá máttu alltaf heyra í okkur á samfélagsmiðlunum og við gefum þér persónulega ráðgjöf. 

    Ert þú með fleiri ráð? Skildu þau eftir hér í kommentum!

    Gangi þér vel!

Athugasemdir

Vertu fyrst/ur til að skrifa athugasemd

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.