Fitted bleyja með AWJ innra lagi og vasa - OS
Vörulýsing
Við kynnum til leiks bætta útgáfu að sérbeiðni Cocobutts hina ofurmjúku og lipru Fitted bleyju 2.0 frá Alva baby! Í tveimur fallegum litum með Athletic Wicking Jersey innra lagi og vasa að framan svo þú getir bætt rakadrægnina eins og þú þarft!
Þessi bleyja passar börnum frá fæðingu til rúmlega 14 kg. Hún er vel aðsniðin, en jafnframt mjög rakadræg. Inn bleyjunni er í-saumaður 3ja laga bambus innlegg sem er mjög rakadrægt og hentar því vel ofurpissurum þarna úti.
Bleyjan er með „ruffled“ teygjum utan um lærin sem gera það að verkum að bleyjan hentar vel læragóðum sem og smágerðum börnum og heldur kúkasprengjum í skefjum. Hentar sem dagbleyja eða sem næturbleyja. Ef það þarf að bæta við rakadrægni þá mælum við með Súper soker hemp/bómullar búster frá Little Lamb.
Þessi bleyja er ER stay-dry og því því þarftu ekki að hafa áhyggjur af flísrenning eða slíku til að halda vætunni frá húð barnsins.
Sjá hér upprunalega útgáfu af fitted bleyjunni frá Alva baby
Athugið að þessi bleyja þarf vatnshelda skel utan um sig þá annað hvort úr ull eða PUL. Þú getur skoðað úrvalið á skeljunum okkar hér.
Efni
80% bambus
20% polyester
Um merkið
Einfaldar og hagkvæmar vörur sem geyma allt sem þú mögulega þarft til þess að leiða farsælt taubleyjulíf. Vinsælustu vörurnar frá Alva baby eru vasableyjurnar og bambus innleggin. Alva Baby er kínverskt merki og eru vörurnar saumaðar þar.