Byrjendanámskeið í Barnaloppunni
Við kynnum til leiks ofboðslega spennandi samstarf með Barnaloppunni þar sem við höfum ákveðið að halda námskeið í raunheimi hjá þeim þann 12. febrúar frá kl 18:30-20:00.
Hafir þú áhuga á því að læra allt sem þú þarft til þess að leiða farsælt taubleyjulíf þá bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin. Námskeiðið er að sjálfsögðu gjaldfrjálst. Gjafaleikir, lukkuhjól og almenn stemning!
Á námskeiðinu verður farið yfir:
- 3 helstu ástæður þess að foreldrar velja taubleyjur í auknum mæli á Íslandi og afhverju þú ættir að íhuga það líka!
- Mismunandi kerfi taubleyja - hver er munurinn?
- Munur á innleggjum
- Þvottarútínur, mátun , geymsla og aðrar þumalputtareglur
- Og allt hitt sem þú þarft að vita til þess að leiða farsælt taubleyjulíf!
Ath: Vinsamlega merkið við hvern gest til þess að áætla sætafjölda.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur.