





Taubleyjur úr lífrænni bómull 80x80cm - 5 í pakka
FORSALA - við eigum von á Disana sendingunni sem þessi vara er í 27 sept - 4 okt 2023
Vörulýsing
Ef þú vilt taubleyjast á gamla mátann eða þarft innlegg sem eru fljót að þorna á snúru þá eru þessar Disana taubleyjur úr lífrænni bómull eitthvað fyrir þig. Frábærar flatar bleyjur undir ullarbuxurnar frá Disana en einnig mjög hentugar til ýmissa annarra nota eins og sem gubbuklútur, undirbreiðsla eða til að vefa barnið.
Nánari upplýsingar
Ummál: 80cm x 80cm
Umhirða
Það þarf að þvo bleyjurnar 3-5x áður en þær eru teknar í notkun til að ná upp rakadrægni og fjarlægja náttúrulegar vatnsfráhrindandi olíur sem finnast í lífrænni bómull. Mega fara í þurrkara á lágum hita en annars eru þær mjög fljótar að þorna á snúru.
Sjá þvotta leiðbeiningar á þvottamiða.
Efni
Efni: 100% lífræn bómull
Vottanir: GOTS (Global Organic Textile Standard)
Um merkið
Disana er þýskt gæðamerki sem leggur áherslu á að framleiða vörur úr eins náttúrulegum efnum og hugsast getur. Disana var stofnað fyrir 40 árum og hóf vegferð sína sem frumkvöðull í náttúrulegum taubleyjum en hefur í gegnum árin fært út kvíarnar og framleiðir einnig ullarfatnað og ullarvörur á alla fjölskylduna.