Fara yfir í aðalefni

Svona byrjar þú í taubleyjum

Að byrja í taubleyjum getur verið yfirþyrmandi verk. Þessi síða er fyrir þá sem vilja fara af stað en þurfa aðstoð við sín fyrstu skref.

1. Fyrst þarftu að kynnast kerfunum sem eru í boði. Byrjaðu á því að lesa þetta blogg um mismunandi kerfi bleyja og sjáðu hvort að eitt kerfi talar sérstaklega til þín. Almennt mælum við með að prófa flest kerfi  áður en þú kaupir allt safnið þitt því annars áttu í hættu með að kaupa of mikið af því sem hentar ykkur síðan ekki. 

2. Þetta hefst síðan allt saman á fyrstu bleyjunum. Um leið og þið eruð komin með þær í hendurnar þá eruði farin af stað. Við mælum hiklaust með einhverjum af byrjendapökkunum okkar en yfir 100 fjölskyldur hafa byrjað sitt ferðalag með einhverjum þeirra og blómstrað.

3. Ef þú vilt ekki kaupa byrjendapakka þá er um að gera að útvega sér þær bleyjur sem þér líst vel á, notað eða nýtt. Einnig mælum við með því að útvega sér a.m.k geymslupoka líka. 

4. Ef þú hefur tökin á því að þrífa annanhvern dag þá mælum við með að eiga 16-20 bleyjur. Þú getur tínt í safnið þitt smátt og smátt eða keypt allar bleyjur í einu sem þér líst vel á. 

5. Þegar þið eruð komin með bleyjurnar í hendurnar skulið þið lesa þetta blogg hér um hvernig á að preppa þær og nokkrar þumalputtareglur varðandi tau. Einnig skaltu horfa á þetta myndband um hvernig á að setja taubleyju á barn og síðan kanski lesa þetta blogg hér um tau og kúk. 

6. Þegar þið eruð búin að lesa hvernig hvernig á að preppa þær og þekkið þumalputtareglurnar skulið þið einfaldlega fara af stað. Núna er að kynnast taubleyjulífinu sjálfu og tími til að spá í þvottarútínu.

Hér er okkar tillaga að einfaldri þvottarútínu til viðmiðunar. Góð þvottarútína er mjög mikilvæg því taubleyjan er næst húð barnsins og því skiptir miklu máli að bleyjurnar séu hreinar. Einnig er gott að hafa í huga að þvottaefni og önnur aukaefni geta safnast fyrir í þvottavélinni og því gott að huga að hreinlæti þvottavélarinnar líka. Hér er tillaga að því hvernig þú djúphreinsar þvottavélina.

7. Farðu af stað og hafðu í huga að í byrjun gertur þetta verið svolítið brösulegt. Verið opin gagnvart leka og almennum ruglingi. Besta ráðið hér er að hlæja bara og reyna betur. Áður en þú veist af ertu komin með skothelda rútínu sem flæðir vel með heimilislífinu þínu. Hér er tjékklisti fyrir leka. 

8. Byrjaðu á því að nota bara þau innlegg sem fylgja með. Kanski eru þau nóg- kanski þarftu meira eða eitthvað öðruvísi. Það er ómögulegt að vita hvað þú þarft án þess að prófa bleyjurnar fyrst. Sum börn eru ofurpissarar og þurfa extra rakadrægni á meðan önnur eru bara góð með það sem fylgir.  Hér er blogg um mismunandi innlegg en einnig erum við með rosalega góða umræðu um innlegg í highligts á instagram @cocobutts.is

9. Þegar þú ert 100% viss um að tau er eitthvað sem þú vilt halda áfram með þá mælum við með því að byrja að tína að sér aukahluti sem gerir tauið svo miklu miklu miklu auðveldara og þægilegra. Hér er okkar tjékklisti 

          - Einn extra stór deluxe geymslupoki til að eiga heimafyrir
          - Einn stór geymslupoki með tveimur hólfum til þess að hafa í skiptitösku
          - Hríspappír til þess að setja í bleyjuna til þess að grípa kúk eða til þess að passa            upp á heilsu bleyjunnar ef þú þarft að nota bossakrem með
          - Fjölnota þurrkur - hversvegna ekki bara taka þetta alla leið?

10. Ef þú ert með einhverjar spurningar sem við höfum ekki svarað hér þá máttu endilega kíkja á þetta blogg um þær algengustu spurningar sem við fáum á borðið til okkar og sjá hvort að þú finnur ekki lausnina þar. Ef ekki þá skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur á instagram, spjallinu, Facebook eða einfaldlega hringja í okkur! Einnig mælum við með því að skrá sig á "Taubleiutjatt" eða í lokaða Cocobutts facebookhópinn fyrir stuðning og hvatningu!

11. Þegar þið eruð búin að tækla daginn þá gæti verið góð hugmynd að spá í næturvaktinni líka. Hér finnur þú gott blogg um næturbleyjur. Til þess að einfalda næturkaupin enn meira höfum við sett saman skotheldann næturpakka sem þú getur fundið hér. 

Þetta eru ráðin og skrefin sem munu koma þér af stað. Allar aðrar upplýsingar eru í raun aukatriði sem þú þarft ekki að spá í nema að þú raunverulega vilt það! Mundu að taubleyjulífið er ferðalag sem vert er að taka fyrir þig, fjölskylduna og umhverfið allt. Gangi þér vel og ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna!

Nýlega skoðað

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.