Í dag er ég fyrst og fremst móðir tveggja yndislegra stráka, þeirra Kristjáns Mána og Gunnars Loga, og eiginkona Gísla Hrafns Gunnarssonar, stjörnuspekings og einkaþjálfara. Ég hef um árabil starfað við uppeldisráðgjöf og samfélagstúlkun, og ólst sjálf upp milli tveggja ólíkra menningarheima þar sem móðir mín er taílensk og faðir minn var íslenskur.
Árin 2021 til 2025 rak ég Cocobutts sem taubleyjuverslun og fræðslusetur. Það var verkefni sem ég brann fyrir, en eins og svo margir sem gefa mikið af sér þá keyrði ég mig út. Seint árið 2025 þurfti ég að stíga á bremsuna og fara í veikindaleyfi vegna langvarandi álags.
Í þessu ferli áttaði ég mig á því að ég hafði fyrir löngu týnt kjarnasjálfinu mínu. Ég var farin að lifa og reka Cocobutts algjörlega í „hlutverkasjálfinu“. Ég átti erfitt með að taka ákvarðanir, vantaði trú á sjálfri mér og vissi hreinlega ekki lengur hvert ég stefndi.
Eftir dýrmætan tíma í sjálfsumhyggju og vinnu með fagaðilum hef ég loksins fundið kjarnasjálfið mitt aftur. Og með því fann ég líka að mig langar ennþá að gefa af mér í gegnum Cocobutts – en á nýjum forsendum. Hér langar mig að deila hugsjónum mínum um foreldrahlutverkið og sjálfsvöxt, hvernig foreldrahlutverkið getur (ef við leyfum það) endurmótað okkur og hjálpað okkur að finna hver við erum í kjarnann og hvert við viljum stefna. Auk þess langar mig að miðla reynslu minni og þekkingu á taubleyjum, koppaþjálfun og næturþjálfun, og hvernig þessi lífsstíll hefur mótað mig sem móður og manneskju.
Ég stunda meistaranám í náms- og starfsráðgjöf og kann mjög vel við mig í því námi. Ég hugsa að ég stefni að ráðgjöf, markþjálfun og pólitík þegar fram líða stundir. Ég hef bilaða réttlætiskennd og brenn fyrir málefnum barna og vexti einstaklinga. Þið munuð pottþétt sjá meira af mér í náinni framtíð 😁
Ef þig langar að spjalla þá máttu endilega senda á mig línu.