Við hjá Cocobutts bjóðum upp á leigu á þráðlausum næturþjálfa sem tengist við app og hjálpar börnum að þróa meðvitund um þvaglát á nóttunni. Þjálfarinn hentar 4 ára börnum og eldri sem eru farin að vilja verða þurr á nóttunni – og foreldrum sem vilja virka, en blíða og virðingarríka nálgun.
Algengar spurningar
🌿 Af hverju að leigja næturþjálfa?
Það getur verið stórt skref að byrja í næturþjálfun – og stundum þarf aðeins smá stuðning til að komast af stað. Með því að leigja þráðlausan næturþjálfa geturðu prófað lausnina í stuttan tíma og metið hvernig hún hentar ykkur, án þess að skuldbinda þig til kaupa.
✔️ Létt byrjun – engin fjárfesting í tæki sem þú ert ekki viss um að nýtist lengi eða yfir höfuð.
✔️ Frábært fyrir börn sem þurfa tímabundinn stuðning í næturþjálfun
✔️ Þægileg og hagkvæm leið til að prófa
✔️ Með rafrænum leiðbeiningum sem styðja þig skref fyrir skref.
📦 Hvað er innifalið í leigunni?
Þráðlaus næturþjálfi sem tengist við app
Límmiðar til að líma næturþjálfann við fatnað
Leiðbeiningar og stuðningur
Valfrjáls eftirfylgni ef óskað er eftir henni
💚 Verð og nánari upplýsingar
Tímalengd leigu
2 vikur: 3900 kr
6 vikur: 9.900 kr
Framlenging - 1 vika í senn: 2000 kr
Framlenging - 4 vikur: 6000
Tækið er þvegið, sótthreinsað og prófað fyrir hverja leigu. Við mælum með að byrja á 2 vikum og framlengja ef þörf krefur.
Leiðbeiningar
Þú færð sendan rafrænan bækling með skýrum leiðbeiningum um hvernig þú tengir tækið, setur það á flíkina og vinnur með barnið í gegnum fyrstu næturnar. Bæklingurinn inniheldur líka góð ráð um hvenær best er að byrja og hvernig á að bregðast við slysum.
🚀 Afhending og skil
Sækja í HN Gallery, Faxafeni 10 – virka daga kl. 12–18 og laugardaga kl. 12–16 eða heim til leigjanda í Norðlingaholti.
Heimsending með Dropp – póstlagt 2–3 dögum fyrir leigutímabil.
Skil fara fram á sama hátt og afhending – þú getur annaðhvort komið með tækið í HN Gallery eða sent það til baka með Dropp. Leiðbeiningar um skil fylgja með. Sendingarverð á tækinu er skv. verðskrá Dropp.
Skil og ábyrgð
Við treystum því að fólk komi vel fram við tækið og skili því á réttum tíma. Ef tækið skilar sér ekki samkvæmt bókun, gerum við eftirfarandi:
Sendum áminningu strax daginn eftir seinkun.
Álagning er 500 kr. á dag í allt að 7 daga.
Eftir það sendum við reikning upp á 20.000 kr. sem samsvarar kostnaði við tækið og lítum svo á að því verði ekki skilað.
Við vonum auðvitað að slíkt komi aldrei til – en með þessu tryggjum við að tækið komist aftur í notkun hjá næstu fjölskyldu ❤️
❤️ Hvernig bóka ég?
Þú fyllir út þetta form hér og við skoðum hvort þráðlaus næturþjálfi sé laus á þeim dagsetningum sem þú óskar eftir. Ef tæki er laust, búum við til leigutímabil sem dagatalstilvik (event) í Google Calendar og sendum þér boð. Þú samþykkir leigutímabilið með því að staðfesta boðið.
Þegar þú hefur samþykkt tímabilið í Google Calendar, færðu frá okkur greiðslulink.
Þú hefur 24 klst til að ganga frá greiðslu – að þeim tíma liðnum lítum við svo á að bókun hafi verið afturkölluð.
Við sendum allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar eftir að greiðsla hefur borist
Leigan er greidd fyrirfram fyrir valið tímabil (2 eða 6 vikur). 2. vikna leiga færst ekki endurgreidd en ef þú bókar 6 vikur en skilar tækinu fyrr, getur þú fengið inneignarnótu fyrir þeim dögum sem eftir standa – svo framarlega sem skilmálar eru uppfylltir og tækið er í góðu ástandi við skil.
✅ Skilmálar
Við bókun samþykkir þú þessa leiguskilmála.