Húð nýfædds barns er ótrúlega viðkvæm.
Hún dregur í sig nánast allt sem hún snertir – og það fyrsta sem hún snertir í þessum heimi… skiptir máli.
Nýburableyjurnar frá Elskbar, sem fylgja leigupökkunum okkar, umvefja litla viðkvæma bossa með dúnmjúku, eiturefnalausu bambusefni sem andar vel og styður við náttúrulegan líkamsþroska.
Engin óþarfa efni og engin lykt sem ekki eiga heima upp við ofurviðkvæma húð.
Veldu bleyjur sem veita barninu þínu öruggt og eitufefnalaust upphaf.
Algengar spurningar
🌿 Af hverju að leigja nýburableyjur?
Engin fjárhagsleg skuldbinding – þú þarft ekki að fjárfesta í öllu strax.
Fullkomið snið og stærð fyrir nýfædd börn – bleyjurnar í pakkanum eru sérstaklega hannaðar fyrir fyrstu vikurnar.
Örugg og náttúruleg efni upp við húð barnsins – mjúkar bleyjur úr eiturefnalausum bambus.
Allt sem þú þarft fylgir með – innlegg, skeljar, blautpoki og rafrænar leiðbeiningar.
Pakkarnir eru endurnýjaðir og hreinsaðir af kostgæfni – til að tryggja hreinleika og öryggi.
Stuðningur og leiðbeiningar frá okkur fylgja alltaf með – þú ert ekki ein/n í þessu.
Að leigja nýburapakka er fullkomin leið til að prófa taubleyjur á einfaldan og áhyggjulausan hátt. Í raun er aldrei eins auðvelt að nota taubleyjur og á nýburatímabilinu þegar barnið nærist eingöngu á mjólk því mjólkurkúkurinn má fara beint í þvottavélina 😃.
📦 Hvað er innifalið í leigunni?
Nýburableyjur frá Elskbar
24x Skeljar með bambus innra lag ásamt trifold úr bambus
Fjölnota þurrkur
10x Bambus blautþurrkur frá Little lamb
10x Bambus terry þurrkur frá Poppets
Blautpokar
1x Miðlungs blautpoki frá Cocobutts
1x Pail Liner frá La Petite Ourse
💚 Verð og nánari upplýsingar
Verð:
30 dagar: 14.900 kr.
60 dagar: 29.900 kr.
Leiðbeiningar
Með hverri leigu fylgir rafrænn leiðbeiningarbæklingur með skref-fyrir-skref upplýsingum og góðum ráðleggingum – svo þú getir byrjað með að nota taubleyjurnar af öryggi og án áhyggja.
Ástandsskoðun
Við leggjum okkur fram við að tryggja að hver pakki sé í topp ástandi – með nýlegum og vel með förnum nýburableyjum og aukahlutum. Ef slit eru áberandi, þá tökum við það úr umferð og endurnýjum það. Þannig tryggjum við hreint og áreiðanlegt taubleyjuupphaf hjá hverri fjölskyldu.
🚀 Afhending og skil
Þú getur sótt og skilað leigupakkanum þínum til okkar án endurgjalds.
Ef þú vilt fá pakkann sendan til þín þá bjóðum við upp á Dropp. Þú greiðir fyrir sendingina fram og til baka og færð endursendingarmiðann sendan með leigupakkanum. Við reynum alla jafna að senda pakkann nokkrum dögum fyrir áætlaðan afhendingardag.
Þú greiðir fyrir sendinguna við pöntun og pakkinn skal sendur til baka í síðasta lagi á lokadegi leigutímans.
❤️ Hvernig bóka ég?
Þú fyllir út þetta form við skoðum hvort nýburapakki sé laus á þeim dagsetningum sem þú óskar eftir.
Ef pakkinn er laus, búum við til leigutilvik (event) í Google Calendar og bjóðum þér að taka þátt í því til að staðfesta tímabilið.
Þegar þú hefur samþykkt tímabilið í Google Calendar, færðu frá okkur greiðslulink.
Þú hefur 24 tíma til að ganga frá greiðslu – að þeim tíma liðnum lítum við svo á að bókun hafi verið afturkölluð.
Við sendum allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar eftir að greiðsla hefur borist
Þú greiðir fyrir fyrsta mánuðinn (30 dagar) sem er óafturkræft, en ef þú sérð fram á að þurfa ekki tvo mánuði (60 daga) og hefur bókað svo langan tíma þá getur þú skilað fyrr og fengið inneign fyrir ónotuðum dögum af seinni mánuðinum.
✅ Skilmálar
Við bókun samþykkir þú þessa leiguskilmála.
3,5 kg
4,3 kg
5,5 kg
Ég leigði nýburapakkan í tvo mánuði og var mjög ánægð með nánast allt í pakkanum en Elskbar bleyjurnar voru klárlega í miklu uppáhaldi. Þetta var mjög góð byrjun á taubleyju lífinu og kom manni í gírinn.
Mæli 100% með!!!
Nýburaleigupakkinn er búinn að vera algjör snilld fyrir okkur. Við erum búin að læra inn á taubleyjur og finnst það alls ekki jafn mikið vesen og við héldum, okkur líður vel með að nota þær þar sem engin útbrot eða roði myndast á húð barnsins, bleyjurnar eru í réttri stærð akkurat fyrir fyrsta mánuðinn - en þar sem litli stækkar hratt verður hann vaxinn upp úr þeim við lok mánaðar sem gerir leiguna svo mikla snilld - algjörlega búið að spara okkur helling! Og líka þar sem litli gaur er yfirleitt bara á bleyjunni þar sem hann er búinn að vera mikið í fanginu og mjög heitfengur þá er náttúrlega extra kjút að hafa hann í taubleyju en ekki ljótri pappableyju :)
Ásdís Drífa BirgisdóttirÉg byrjaði í taui með annað barn fyrir algjöra slysni þegar ég fann Cocobutts á popup markaði. Ég var kasólétt og sá fullt af krúttlegum bleyjum sem dró mig að ykkur í mjög fróðlegt og skemmtilegt spjall. Ég vissi ekki að taubleyjur væru búnar að þróast svona mikið en ég er all in fyrir allt sem er fjölnota til þess að vernda umhverfið okkar. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um og keypti startpakka og bókaði leigu á nýburableyjupakka frá fæðingardegi barnsins sem var sendur heim kvöldið sem við komum heim frá fæðingarheimilinu. Nýburableyjurnar komu sér súper vel því þær pössuðu mikið betur og eru líka svo krúttlegar og kósý á svona pínulítin bossa. Við notuðum þær þar til hún var 6 vikna en þá skiluðum við þeim og byrjuðum að nota startpakkann sem er mjög skemmtilegur því í honum eru mörg mismunandi kerfi sem við erum að prófa og sjá hvað virkar best á litla krúttbossann okkar. Bossinn er laus við roða og það kemur varla fyrir að það leki og einfalt að þrífa og ganga frá. Við prófuðum aðeins einnota þegar við fórum í ferðalag og í langa heimsókn og komumst að því að þær leka frekar og það kom strax roði á bossann (man það líka með fyrra barnið að það var miklu oftar roði á bossanum). Ég var fyrst smá stressuð að þetta væri flókið að læra fyrir okkur foreldrana en þetta var ekkert mál og þið eruð líka svo góðar að útkýra allt bæði á heimasíðunni og í símann eitt skiptið þegar ég þurfti hjálp. Núna áðan var ég líka að ljúka gjaldfrjálsu byrjendanámskeiði hjá ykkur sem var snilld til þess að eiga farsælt taubleyjulíf og það verður aldrei aftur snúið, við erum að elska þetta. Ég er líka komin með fjölnota lekahlífar og dömubindi frá ykkur því ég fékk sjokk fyrstu dagana við tilhugsunina um allt sem væri að fara í ruslið. Þið eruð að gera frábæra hluti með litlu sætu búðinni ykkar og með því að fræða fólk. Við erum með ykkur í liði í team taubleyjur, let’s go!
S.D.Þessi leigupakki er algjör snilld og hefur nýst okkur svo vel. Munar svo miklu að þurfa ekki að nota bréfbleyjur á lítinn nýfæddan bossa með öllu ruslinu sem fylgir því, fyrir utan hvað tauið er margfalt betra fyrir barnið OG hvað bleyjurnar eru sjúklega fallegar 😍
A.K.S.SVorum ótrúlega ánægð með að hafa tekið þennann pakka á leigu og fá þar með góða kynningu inn í taubleyjulífið. Elskbar bleyjurnar voru mjög góðar of mjög hentugar fyrstu vikurnar. Við leiguðm pakkann í tvo mánuði en gátum skilað honum fyrr þegar barnið var orðið of stórt í bleyjurnar sem var mjög hentugt! Mæli með fyrir alla sem eru að velta því fyrir sér að byrja í taubleyjum strax frá byrjun.
K.S.