Er þú tilbúin að kveðja bleyjuna fyrir fullt og allt og tengjast barninu þínu dýpri böndum?
✔︎ Vita nákvæmlega hvenær barnið þarf að fara á koppinn og verða sérfræðingur í merkjum þess áður en slysið verður.
✔︎ Leggja grunninn að heilbrigðu sambandi við eigin líkama og tryggja jákvæða upplifun fyrir barnið á vegferð þess til nýs sjálfstæðis.
✔︎ Grípa gluggann þegar barnið er forvitið og nýta „gullna tímann“ (18–30 mánaða) til að ná sem bestri samvinnu.
✔︎ Fá aðgang að skýrum og hagnýtum ráðum sem virka í íslenskum raunveruleika, jafnt heima sem og á leikskólanum.
✔︎ Öðlast meira sjálfstraust og treysta ferlinu svo þú vitir nákvæmlega hvað á að gera ef bakslög koma upp.
✔︎ Horfa á hnitmiðuð myndbönd þegar þér hentar og hafa frelsi til að læra á þínum hraða.
✔︎ Forðast þvinganir eða stressandi baráttu og kveðja bleyjuna með ró.
Þetta gefur manni skýrt plan til að fylgja við koppaþjálfun og einnig upplýsingar um hvernig maður eigi að meta hvort/hvenær maður þurfi að taka skref til baka (reset). Námskeiði gaf mér sjálfsöryggi til að fara af stað í koppaþjálfunina þegar heppilegur tími finnst til þess.
Sóley
Móðir 18 mánaða barns
Við vorum búin að fá svo mismunandi upplýsingar og ráð úr öllum áttum svo við vissum ekki hvar við áttum að byrja í koppaþjálfun. Okkur fannst námskeiðið mjög skýrt og það gaf okkur góðar upplýsingar og hvatningu til að byrja strax í þessu ferli með stráknum okkar!
Ólöf Þórunn
Móðir 17 mánaða og 2,5 árs systkina
Já það voru mörgum spurningum svarað í námskeiðinu og tel mig vera tilbúnari að demba mér í koppaþjálfunina og hafa trú á því sem ég er að gera. Búin að heyra allskonar aðferðir og fannst þetta vera svo yfirþyrmandi en eftir námskeiðið finnst mér eins og þetta verði ekkert mál.
Þórdís Elsa
Móðir 22. mánaða barns
Mér finnst frábært að fá stuðningshópinn til að setja inn spurningar og sja spurningar frá öðrum. Líka frábært að hafa möguleikan á upptöku sem er jafnvel hægt að horfa á aftur ef fólk telur sig þurfa þess.
Nafnlaust
Fannst gott að læra hvernig ég næ bleyjunni burt því það er búið að vera smá vandamál. Mun 100% fylgja því sem eg lærði með bæði börnin.
Stefanía Marta Jónasdóttir
Móðir 21 mánaða barns
Námskeiðið var skýrt og mjög gagnlegt.
Virkilega gott að fa skipulag og tól í hendurnar aður en maður byrjar a koppaþjálfuninni.
Monika
Móðir 23 mánaða barns
Það besta við námskeiðið var að fá skýrar leiðbeiningar frá fagaðila með aðferð sem virkar. Það mun örugglega auðvelda koppaþjálfunina til muna!
Brynhildur Dóra
Móðir 23 mánaða barns
Það var mjög hnitmiðað, overall hvetjandi andi, nýttist mer mjög vel að styðjast við þessar upplysingar i gegnum koppaþjalfunartimabilið okkar.
Una Björg Bjarnadóttir
Móðir tveggja ára drengs
Við leggjum grunninn og förum yfir Oh Crap Potty training aðferðina eftir Jamie Glowacki. Ég sýni þér hvernig þú undirbýrð heimilið, velur rétta búnaðinn og hvernig þú stillir þitt eigið hugarfar upp fyrir árangur.
Kjarni námskeiðsins samanstendur af fimm krítískum þrepum í koppaþjálfun. Ég leiði þig frá því að læra að lesa í líkamstjáningu barnsins yfir í það hvernig þú hvetur það til fullkomins sjálfstæðis á klósettinu.
Ég sýni þér hvernig þú undirbýrð samtalið við starfsfólk leikskólans og tryggir samræmi í ferlinu svo barnið upplifi öryggi allan daginn. Við förum einnig yfir hvernig þú sérð hvenær barnið er tilbúið fyrir bleyjulausa nótt og hvernig þú tekur það skref.
Hvað gerum við þegar barnið neitar og mótþróinn tekur öll völd? Eða ef slysin verða mörg? Ég gef þér skýr svör við algengustu hindrunum og sýni þér hvernig þú heldur áfram með ró og yfirvegun þegar áskoranir koma upp.
Netnámskeið sem inniheldur allt sem þú þarft að vita til að hjálpa barninu þínu að ná áreiðanlegum árangri í salernisfærni á örfáum vikum. Markmiðið er ekki bara bleyjulaust líf, heldur barn og foreldri með meira sjálfstraust og betri tengingu.
LEIÐ 1: 9.900 kr.
Fullur aðgangur að netnámskeiði og námskeiðsgögnum
Hentar þér ef þú vilt læra á þínum hraða með öll tæki við höndina.
✔︎ Fullur aðgangur að öllum myndbandsfyrirlestrum
✔︎ Gátlistar & PDF gögn til útprentunar eða vistunar á síma
✔︎ Leiðbeiningar fyrir leikskólann og næturþjálfun
✔︎ Fræðsla um næturþjálfun
✔︎ Ótakmarkaður aðgangur hvenær sem hentar.
LEIÐ 2: 14.900 kr.
Netnámskeið og námskeiðsgögn + 20 mínútna ráðgjöf og aðgangur að stuðningshóp
Hentar þér ef þú vilt fá fullan aðgang að námskeiðinu með persónulegum stuðningi.
✔︎ Allt efni námskeiðsins (myndbönd og gögn)
✔︎ 20 mínútna fjarfundur á Google Meet*
✔︎ Aðgangur að stuðningshóp á Facebook
✔︎ Persónuleg ráðgjöf sniðin að ykkar stöðu
✔︎ Svör við sértækum spurningum og áskorunum
✔︎ Aukið öryggi og sjálfstraust í ferlið
✔︎ Ótakmarkaður aðgangur hvenær sem hentar.
*Verður að nýta innan þriggja mánaða frá kaupum
Ég mæli með að horfa á námskeiðið þegar barnið er á aldrinum 18–30 mánaða. Það er sá tími sem við köllum „gullna tímann“ þar sem vitsmunaþroski og forvitni barnsins mætast. Það er þó ekkert því til fyrirstöðu að byrja fyrr eða seinna ef þið teljið barnið tilbúið eða viljið hefja undirbúninginn snemma.
Það er algengur misskilningur að við þurfum að bíða eftir að barnið „sé tilbúið“ til að læra á koppinn. Í námskeiðinu lærir þú hvernig þú býrð til áhuga og hvernig þú hvetur barnið áfram á jákvæðan hátt án þess að þvinga það.
Það er aldrei of seint að byrja aftur. Námskeiðið hjálpar ykkur að „núllstilla“ ferlið, greina hvar áskoranirnar lágu og gefur ykkur ný verkfæri til að nálgast þjálfunina með meira sjálfstrausti og skýrari áætlun.
Þú hefur ótakmarkaðan aðgang að námskeiðinu svo lengi sem það er í boði hjá Cocobutts. Þú getur því horft á myndböndin aftur og aftur, til dæmis þegar þið færið yfir í næturþjálfun eða ef bakslög verða.
Alls ekki! Þótt Cocobutts brenni fyrir taubleyjum, þá nýtist þetta námskeið öllum foreldrum óháð því hvaða bleyjur hafa verið notaðar hingað til. Aðferðin snýst um líffræðilegan þroska og samskipti.
Ef þú velur leiðina með ráðgjöf, átt þú inni hjá mér 20 mínútna spjall á Google Meet sem hægt er að nýta innan 3 mánaða frá kaupum. Þetta er tilvalið þegar þið eruð að undirbúa ykkur eða ef spurningar vakna í miðju ferli. Allir sem kaupa leið 2 fá einnig boð í lokaðan stuðningshóp á Facebook þar sem foreldrar geta deilt reynslu og fengið stuðning frá hvert öðru og mér.
Fylltu út upplýsingarnar hér til hliðar eða smelltu á linkinn til að skrá þig!
Þú velur hvort þú vilt millifæra eða fá greiðsluhlekk sendan. Um leið og greiðsla berst færðu tölvupóst með öllum aðgangsupplýsingum.