Fara yfir í aðalefni

Mismunandi innlegg í taubleyjur

Mismunandi innlegg í taubleyjur

Til þess að njóta velgengni og sleppa við leka og annað vesen er mikilvægt að nota viðeigandi innlegg. 

En hvað eru góð innlegg ?

Míkrófíber, bómull, bambus, kolabambus, hampur... Hvað er þetta allt saman og hvernig skiptir þetta máli?

Innlegg eru rakardægi hluti taubleyjunnar og það eru til ótalmargar tegundir.  Algengast er að innleggin séu saumuð í þeirri stærð að þau passi sérstaklega vel í vasann á vasableyjum, eitt eða tvö saman.

Sum innlegg eru með smellum svo hægt sé að smella þeim föstum við bleyjuskelina. Sum innlegg eru extra löng svo hægt sé að brjóta þau tvöfalt og ráða því hvar mesta rakadrægning er í bleyjunni. Önnur innlegg eru ferhyrnd eða rétthyrnd til dæmis prefolds sem eru með tveimur saumum svo hægt sé að brjóta þau saman í þrennt.

Gasbleyjur og gubbuklútar eru einnig hentug sem innlegg og hægt er að brjóta þau saman á marga vegu. Innlegg má setja ofan í vasa á vasableyjum eða leggja beint ofan í skelina, við húð barnsins.*

Hér munum við fara í yfir algengustu efnin í innleggjum og sýna hvaða úrval Cocobutts hefur upp á að bjóða í hverju efni fyrir sig. Auk þess förum við yfir hvernig gott er að raða þeim saman til að fá sem bestan árangur. 

Rakadrægni og hraðvirkni innleggja í taubleyjur

Mynd 1: Rakadrægni og hraðvirkni mismunandi innleggja í taubleyjur

Algengustu tegundir efna:

Bambus

Er mjög vinsæl innleggjategund og ekki af ástæðulausu, bambus innlegg eru mjög rakadræg og halda vel vætu. Algengt er að innlegg úr bambus, bambus terry eða bambus og míkrófíber blöndu fylgi vasableyjum í dag. Þetta innlegg má liggja upp við húð barnsins og eru því afar vinsæl í bæði vasableyjur og Ai2 skeljum.

Yfir heildina litið er bambus mjög umhverfisvæn auðlind. Hann er endurnýtanlegur og vex mjög hratt, hann hreinsar loftið, er harðger og endingargóður. Þar að auki er bambus endurvinnanlegur og niðurbrjótanlegur og lítið fellur til við framleiðslu hans. Ókostur við bambusinn er að ræktun hans hefur hvatt suma bændur til einræktunar sem ýtir undir eyðingu skóga og truflun á vistkerfum sem er ekki sjálfbært fyrir umhverfið til lengri tíma litið. 

Kostir

  • Mjög mjúk
  • Geta verið í nettara lagi
  • Halda miklum vökva

Ókostir

  • Taka frekar hægt við vökva
  • Lengur að þorna

Úrval Cocobutts

 

Hampur

Stór kostur við þessa tegund er hversu umhverfisvænt það er að rækta og vinna hampinn. Þetta er einnig rakadrægasta innleggið en jafnframt það dýrasta. Stór kostur er hversu nett þessi innlegg geta verið og því auðvelt að bæta þeim við í bleyjuna sem búster. Við mælum með því að fjárfesta í nokkrum góðum hamp innleggjum/bústerum. Þetta innlegg má liggja upp við húð barnsins.

Kostir 

  • Taka við MJÖG miklum vökva
  • Mjög nett
  • Umhverfisvæn í framleiðslu 

Ókostir 

  • Dýr
  • Geta verið “hörð” viðkomu eftir þvott og þurrk ef ekki sett í þurrkara
  • Lengi að þorna
  • Draga hægt í sig vökva

Úrval Cocobutts

Bómull

Gamli klassíski bómullinn hefur þjónustað foreldrum bleyjubarna frá upphafi. Bómull er oft blönduð við bambus eða hamp til að fá það besta úr úr innlegginu. Bómullinn er hægt að finna allstaðar. Til dæmis má fá gasbleyjur (gubbuklúta) í rúmfaralagernum og flestum matvöruverslunum. Einnig eru til margar útgáfur sem sérstaklega eru gerðar fyrir taubleyjur eins og „prefold“, þá er búið að sauma efnið saman svo mesta þykktin sé í miðjunni og hægt að bróta innleggið saman auðveldlega á þann hátt sem best hentar barninu. Þetta innlegg má liggja upp við húð barnsins.

Kostir

  • Frekar ódýrt
  • Tekur frekar hratt við vökva
  • Margar útgáfur til, s.s. Prefold, trifold, gasbleyjur og innlegg
  • Hægt að finna hvar sem er 

Ókostir

  • Geta verið plássfrek
  • Halda ekkert mjög miklum vökva

Úrval Cocobutts

Mikrófíber

Er gerviefni (polyester). Þessi tegund má alls ekki liggja upp við húð barnsins, getur valdið þurrk og útbrotum. Þetta er langódýrasta innleggið og mjög algengt er að eitt míkrófíber innlegg fylgi ódýrari vasableyjum. Kostur við Míkrófíber er að hann dregur vökva hratt í sig en hann heldur ekki miklum vökva. Míkrófíber innlegg dugar sjaldnast eitt og sér, oftast þarf að bæta við innleggi úr öðru efni eins og t.d. úr bómull eða bambus.

Kostir

  • ódýrt
  • Tekur hratt við vökva
  • Þornar hratt

Ókostir 

  • Halda ekki miklum vökva
  • Gjörn á að valda leka ef á þau er þrýst (bílstóll, þröngar buxur)
  • Gjarnari á lyktarvesen
  • Léleg ending
  • Losar mest af plastögnum við þvott af öllum innleggjategundunum
  • Má alls ekki vera upp við húð barnsins

Kolabambus 

Ef þú sérð svart /grátt innlegg er það að öllum líkindum það sem kallast „kolabambus“. Þessi tegund var vinsæl fyrir þó nokkrum árum en vinsældir hafa farið dvínandi. Nafnið er villandi þar sem það er nánast enginn bambus í þessu efni heldur er þetta gerviefni. Innlegg úr þessu efni eru mjög mjúk og oft frekar þykk. Yfirleitt eru 2-4 mikrófíber lög að innann og kolabambuslag að utanverðu. Þetta innlegg má liggja upp við húð barnsins. 

Kostir

  • Tekur hratt við vökva
  • Þornar frekar hratt
  • Halda miðlungsmiklum vökva

Ókostir 

  • Gjörn á að valda leka ef á þau er þrýst (bílstóll, þröngar buxur)
  • Mjög plássfrek

Hvað set ég í bleyjuna?

Þegar vasableyjan er undirbúin þarf að taka mið af því hvernig „pissari“ barnið er. Þetta getur tekið tíma að finna útúr og getur breyst með aldri barnsins. Það sem hentar 4 mánaða gömlu barni hentar eflaust ekki þegar barnið er orðið 1. árs.
Góð leið til að byrja er að setja saman eitt míkrófíber innlegg (ofan) og eitt bambus innlegg (undir). Þá dregur míkrófíber innleggið vætuna í sig hratt og bambus innleggið tekur svo við vætunni hægar en heldur mun meira magni. Þetta er sérstaklega gott fyrir þau börn sem pissa mikið og hratt í einu.

Sum börn pissa lítið í einu og oftar. Þeim börnum gæti hentað betur að hafa tvö bambus innlegg eða eitt innlegg úr bambus og annað úr hampi. Það sem skiptir mestu máli er að prufa sig áfram og eiga innlegg og bústera úr góðum efnum. 

En hver er munurinn á innleggi og búster?

Í raun enginn, þetta er sami hluturinn en oftast eru innlegg stærri og passa í vasableyjur en bústera minni eða þynnri og eiga þá að gefa bara örlítið meiri rakadrægni. 

Ef þér finnst eins og bleyjan dugi næstum því alveg, að það vanti bara hálftíma uppá, þá er nóg að setja einn góðann búster í bleyjuna. Það er oft betra val heldur enn að troða öðru innleggi í vasann því þá yrði bleyjan svo stór um sig fyrir barnið.

Sniðugt er að prófa sig áfram með þunn innlegg og bústera, brjóta þá saman í tvennt eða þrennt og setja á “álagsstaði” - að framanverðu fyrir drengi og fyrir miðju hjá stúlkum. Það er mjög oft sem eitt innlegg ásamt góðum samanbrotnum búster á réttum stað getur gert mikið og verið þægilegt fyrir barnið.

Úrval Cocobutts

 

Lekar - hvað get ég gert ? 

Stundum leka bleyjurnar. Þá þarf að komast að því hvað er að. Stundum eru það lélégar teygjur eða að bleyjan sé ekki rétt sett á. En ef það tvennt er í lagi þarf að skoða innleggin.

Of mikið af innleggjum/ of troðin bleyja getur valdið þrýstingsleka. Stundum eru innleggin alveg gegnsósa eftir stuttann tíma. Þá er gott að endurskoða innleggin, t.d. skipta út míkrófíber fyrir bambus eða hamp, það bæði eykur rakadrægni og minnkar umfang bleyjunnar. 

Einnig má hafa í huga að þarfir barna breytast, þau ganga í gegnum þroskaskeið. Til dæmis í kringum 5 mánaða aldurinn fer barnið að pissa meira í einu, oftar og á sama tíma eykst hreyfiþroskinn. Það er yfirleitt á þessum tíma sem taubleyjuforeldrar byrja að lenda í vandræðum ...akkúrat þegar þvottarútínan var orðin góð, allar bleyjurnar farnar að passa svo vel og þetta var byrjað að verða einfalt! Týpískt!

Góð innlegg, sett saman á réttann hátt og góðir bústerar geta lagað þetta vesen. 

 Gangi ykkur vel!

Athugasemdir

Vertu fyrst/ur til að skrifa athugasemd

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.