Fara yfir í aðalefni

Haltu bleyjunum þínum í topp standi með þessum ráðum

Góð taubleyja ætti að duga yfir 2-3 bleyjutímabil - það eru hátt upp í 10 ár! 

En fyrir utan að vera með góða þvottarútínu, hvað þýðir að „hugsa vel um bleyjurnar“?.

Hér eru nokkur ráð sem ættu að hjálpa ykkur að fullnýta endingartíma bleyjunnar og stuðla að hamingju hennar í heilan áratug!

 

1. Hengdu þær upp í stað þess að setja þær í þurrkara

Það má þurrka innlegg á lágum hita en reyndu þó frekar að leggja þær á ofn eða á snúru. Það fer betur með þær. Skeljar og vasar þurfa ekki að fara í þurrkara. 

2. Notaðu þvottanet

Innlegg úr náttúrulegum efnum þrífast betur í þvottaneti sem verndar þau frá öðrum hlutum í vélinni. Pokinn getur einnig komið í veg fyrir slit og að göt myndist á bleyjunni. 

3. Settu þær í sólbað þegar veður leyfir

Sólin gerir kraftaverk fyrir bletti og er frábær náttúruleg leið til þess að gera þær hvítar aftur.

4. Ekki nota mýkingarefni eða þvottaefni með ensýmum

Mýkingarefni gera bleyjur vatnsheldar. Ensým eru efni sem eiga að „bústa“ frammistöðu þvottaefnisins fyrir almennan þvott en það getur verið of mikið fyrir taubleyjur. Ef þú vilt „bústa“ þvottaefnið þitt þá er til sölu taubleyjuvænt þvottabúst sem við mælum heilshugar með fyrir taubleyjur. 

5. Haltu djúphreinsun í lágmarki

Það er rosalegt álag á alla hluta bleyjunnar að fara í gegnum djúphreinsun. Við vitum þó að stundum sé nauðsynlegt að gera djúphreinsun en reyndu frekar að hafa þvottarútínuna í lagi og djúphreinsanir í sögulegu lágmarki. Við mælum aftur með taubleyjuvæna þvottabústinu í þvottahringinn þinn til þess að viðhalda góðri þvottarútinu. Þú getur lesið þig til um djúphreinsun hér. 

6. Ekki gleyma að loka riflásnum!

Ef þú gleymir að loka flipunum geta þeir krækst í annað í vélinni og rifið aðrar bleyjur.

7. Þegar þú opnar smellur,  opnaðu þá smelluna sjálfa en ekki rífa í bleyjuna (ytra lagið).

Við höfum séð foreldra rífa bleyjur af börnum án þess að opna frá smellunum sjálfum.  Þetta getur myndað göt og jafnvel rifið smellurnar úr stað. Endilega bentu á þetta sérstaklega þegar barnið fer í pössun eða á leikskóla.

8. Skolaðu þær á hverjum degi til að koma í veg fyrir lykt og sýruuppsöfnun

Sýrur geta verið sterkar í úrgangi. Reyndu að skola það mesta úr bleyjunum á hverjum degi áður þú geymir þær. Sýrur geta myndað bletti og jafnvel myndað göt.

9. Ekki geyma þær í vatni

Lengi hefur verið mýta að það sé í lagi að geyma bleyjur í íláti með vatni.  Við mælum gegn þessu því þetta hefur áhrif á teygjur og skeljar til lengri tíma.  Betra er að skola bleyjuna vel og geyma þær á þurrum stað með opnu loftflæði.

9. Notaðu lænera – sérstaklega ef þú þarft að nota krem með zinci

Það er almennt vitað að Zinc gerir bleyjur vatnsheldar og getur farið illa með þær. Stundum er  þó ekkert annað í stöðunni en að nota Zinc og í þeim tilfellum eru einnota lænerar snilld! Settu eitt blað af læner í bleyjuna og hentu honum síðan eftir notkun. Þetta skapar vörn á milli bleyjunnar og kremsins.

ATH að aldrei má sturta lænerum í klósettið því þeir geta stíflað klósettið. Hentu þeim í ruslatunnuna.


Athugasemdir

Vertu fyrst/ur til að skrifa athugasemd

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.