Fara yfir í aðalefni

Þvottaleiðbeiningar fyrir ullarbleyjur

Þvottaleiðbeiningar fyrir taubleyjur úr ull

Ullarþvottur er ekki eins flókinn og maður heldur! 

Í  þessum stutta pistli ætlum við að fara yfir tvær mismunandi lanolín meðferðir; Hefðbundin lanolín meðferð, Lanolín meðferð með Poppets lanolínmola sem báðar eru tilvaldar fyrir fyrstu notkun og í lokin förum við yfir Blettaþvott á ullarskeljum.

Í grunninn þarf ekki að þvo ull svo oft. Nóg er að þvo og setja skel í lanolínmeðferð á 1-3 mánaða fresti nema það komi kúkur í hana. Ef skelin er spreyjuð með lanolín viðhaldsspreyi reglulega þá er nóg að gera lanolín meðferð á 2-4 mánaða fresti og þvo skelina með ullarsápu eftir þörfum.  

En eftir hver bleyjuskipti þarf að leyfa skelinni að lofta í góðu loftflæði. Það er því hægt að nota 2-3 skeljar á viku til skiptis. Ef kúkur fer út fyrir á ullina er vel hægt að blettaþvo hana með t.d. ullarsápu ef þetta er ekki mikið en annars er best að þvo skelina alla strax.

taubleyjur úr ull

Fyrir fyrstu notkun

Það getur það tekið allt að 3 skipti að ná upp góðri vatnsheldni á skelina og því þarf að leggja nýjar skeljar a.m.k. 2-3x til að byrja með án þess að leggja skelina til þerris á milli meðferða en það þarf að vinda mestu vætuna úr skelinni.

Hvað þarf ég? 

  • Lanolín eða Poppets lanolín mola (einnig er hægt að nota lansinoh brjóstakrem) 
  • Ullarsápu eða milda sápu að eigin vali (óþarfi ef Poppets lanolín moli er notaður)
  • Heitt vatn og volgt vatn
  • Bolli eða krukka
  • Skál, lítill bali eða vaskur
  • Skeið

Hefðbundin lanolín meðferð

Hefðbundin lanolín meðferð

  1. Fylltu skál, lítinn bala eða vaskinn af volgu vatni, nóg til að þekja ullarskelina þína. Passaðu að vatnið sé ekki heitara en 30 gráður.
  2. Settu 1/4 teskeð af lanolíni per ullarskel í bolla og bættu svo við dass af ullarsápu, mildri sápu eða jafnvel Poppets blautþurrkumola.
  3. Settu nýsoðið vatn ofan í bollann og hrærðu blönduna með skeið þangað til blandan verður skýjuð og lanolínið er alveg leyst upp.
  4. Hellið blöndunni ofan í volga vatnið.
  5. Setjið ullarskelina ofan í lanolín lögurnar og kreistið skelina varlega þannig að hún blotni alveg í gegn. Leyfið svo skelinni að liggja í bleyti í 4 tíma eða yfir nótt. 
    Endurtakið þetta skref 2x ef ullarskelin er ný án þess að þerra hana.
    Ef verið að fríska upp á notaða skel dugar að gera þetta skref 1x.
  6. Vindið skelina varlega og leggið á þurrt handklæði.
    Rúllið upp handklæðinu og kreistið mestan vökva úr
    Leggið til þerris á flötum stað.

Lanolín meðferð með lanolínmola frá Poppets

Lanolín molar
  1. Settu 1stk lanolín mola í 100ml af heitu vatni ofan í stóran vasa eða krukku og hrærðu þar til molinn hefur leyst sig alveg upp og liturinn á vatninu er orðinn skýjaður. 
  2. Hellið blöndunni ofan í 200ml af köldu vatni í skál, bala eða vaski.
  3. Setjið ullarskelina ofan í lanolín lögurnar og kreistið skelina varlega þannig að hún blotni alveg í gegn. Leyfið svo skelinni að liggja í bleyti í 4 tíma eða yfir nótt. 
    Endurtakið þetta skref 2x ef ullarskelin er ný án þess að þerra hana.
    Ef verið að fríska upp á notaða skel dugar að gera þetta skref 1x.
  4. Vindið skelina varlega og leggið á þurrt handklæði.
    Rúllið upp handklæðinu og kreistið mestan vökva úr
    Leggið til þerris á flötum stað

    Hægt er að nota afganginn af lögunum til að fríska upp á aðra ullarskel. 

Blettaþvottur

Blettaþvottur ullarbleyjur
  1. Fylltu skál, lítinn bala eða vaskinn af volgu vatni, nóg til að þekja ullarskelina þína. Passaðu að vatnið sé ekki heitara en 30 gráður.
  2. Bættu við dass af fljótandi ullarsápu og blandaðu vel saman eða ef þú ert með ullarsápustykkið frá Poppets þá nuddaru því á milli handanna þangað til vatnið er orðið skýjað.
  3. Setjið ullarskelina ofan í blönduna.
  4.  Fyrir blettaþvott er gott að nudda Poppets sápustykkinu beint á ullina. Annars bara að nudda vel og skola bletti alveg úr. 
  5. Leyfið skelinni að liggja í bleyti í sápulögunum í 30 mínútur. Skolið varlega.
  6. Ef það á að setja skelina í lanolínmeðferð þá hefst það ferli hér. 
  7. Vindið skelina varlega og leggið á þurrt handklæði.
    Rúllið upp handklæðinu og kreistið mestan vökva úr
    Leggið til þerris á flötum stað.

Nokkrir almennir punktar til að hafa í huga: 

  • Það á alltaf að handþvo ullarskeljar
  • Vatnið skal alltaf vera volgt eða um 30 gráður og forðast skal að nota mismunandi hitastig af vatni, ullin gæti þæfst og hlaupið sé það gert. 
  • Aldrei á að nudda eða skrúbba ull, bara kreista varlega.
  • Aldrei á að vinda ull harkalega í höndum, best er að rúlla upp í handklæði og kreista þannig mesta vökvan úr varlega. 
  • Eftir lanolin bað er eðlilegt að skelin sé svolítið klístruð, það lagast eftir 1-2 skipti á bossa.
  • Þvoið ull í dökkum og ljósum litum í sitthvoru lagi.
  • Við mælum líka með að halda vatnsheldninni við með Lanolín viðhaldsspreyinu okkar frá Poppets baby!

Ullarumhirðuvörur sem við mælum með

 

Athugasemdir

Vertu fyrst/ur til að skrifa athugasemd

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.