Ai2 Soft Cover skel
Við kynnum til leiks betrumbættu "Soft Cover" skeljarnar frá Bare and Boho!
Hér hafa þau í Ástralíu tekið vörurnar sínar og gert þær enn þægilegri, enn fallegri og enn umhverfisvænni fyrir nútíma fjölskyldur. Allar vörurnar þeirra eru með þægindi og skilvirkni í fyrirrúmi án þess að það bitni á verði eða gæðum.
2.0 týpurnar eru hannaðar með lúxusfílíng í huga fyrir barnið þitt. Saumarnir eru mýkri og mjúka innralagið enn betra. Sannkölluð dekurbleyja!
Þessar bleyjur myndu eru á milli þess að vera AIO og Ai2 bleyjur þar sem hver skel og hvert innlegg er aðeins hægt að nota einusinni. Innleggin eru þó hægt að smella í og úr en það er gert til þess að stytta þurrkutímann.
Hönnunin er einstök og gerð með mikilli varkárni og nákvæmni. Hver skel skartar fallegri list frá þekktum listamönnum víðsvegar úr heiminum.
Þessar bleyjur eru hugsaðar fyrir börn milli 3.5-18kg.
Eiginleikar 2.0 bleyju
Efni
100% Endurunnið polyester úr plasti sem hefur fundist í sjónum + TPU Laminate
Breiðar og mjúkar teygjur
Tvöfaldar lærateygja
Um merkið
Bare and Boho er ástralskt vörumerki sem framleiðir fjölnota nauðsynjavörur fyrir börn og konur. Vörurnar þeirra eru framleiddar í Kína, í Sedex vottuðum verksmiðjum til að tryggja hreinlæti og öruggar vinnuaðstæður starfsfólks. Allur textíll frá vörumerkinu era OEKO-TEX eða GOTs vottaður og öll mynstrin eru sköpuð af listamönnum víðsvegar úr heiminum.