Fara yfir í aðalefni

Tau á ferðalögum

Það er fátt sem við þekkjum betur en taubleyjur…. og ferðalög!

Já, það er svo sannarlega hægt að vera eiga farsælt taubleyjulíf á ferðinni hvort sem það er utan- eða innanlands.Hér eru nokkrir punktar frá okkur sem vonandi hjálpa ykkur að láta dæmið ganga upp! Það eina sem þú þarft er rétta skipulagið, aukahlutina og hugarfarið!

taubleyjur á ferðalagi

Fyrir innanlandsferðalög

  • Gott er að kortleggja hvar og hvenær þið hafið aðgengi að þvottavél. Áttu vinafólk á landsbyggðinni? Nýttu tækifærið til þess tengjast þeim og fáðu að henda í þvott í leiðinni! Við höfum meira að segja oft séð fólk spyrja inn á taubleyjugrúppum hvort að einhver sé ekki til í að hjálpa, og yfirleitt fá fyrirspurnirnar æðislegar undirtektir - taubleyjusamfélagið á Íslandi er alveg dásamlegt!
  • Hótel og tjaldsvæði eru oft með þvottaaðstöðu. Þú þarft bara að spyrja!
  • Næst er það taubleyjuskiptitaskan. Við mælum með tösku sem er vel skipulögð og hægt að nota sem bakpoka. Það er auðveldara að mehöndla þær og hafa þær með sér en hliðartöskur. Við mælum með skiptitöskunni frá La Petite Ourse, sérstaklega vegna þess að hún er með innbyggðri skiptiaðstöðu!
  • Eins og alltaf gegnir blautpokinn þinn lykilhlutverki, SÉRSTAKLEGA á ferðalögum. Það er algjörlega lífsnauðsynlegt  að vera með stóran geymslupoka til þess að geyma óhreinar bleyjur í. Ef þú hefur aldrei átt  blautpoka (PUL poka), þá er þetta rétti tíminn til þess að fjárfesta í a.m.k. tveimur. Sá fyrsti þarf að vera stór og rúmgóður, með rennilás. Það getur verið súrt að vera með notaðar bleyjur í opnum poka í bíl, tjaldi eða sumarbústað til lengdar. Við mælum heilshugar með XL pokanum frá Alva baby en hann er með hönkum og rennilás, þannig þú getur lokað honum alveg, og auðvelt er að bera hann á milli staða sem og hengja hann upp. 
  • Sem minni geymslupoka til þess að hafa í skiptitöskunni mælum við með hvaða miðlungs poka sem er. Þessi frá Alva Baby er á t.d á frábæru verði, er með tveimur hóflum og öflugum hönkum sem smellpassar í skiptitöskuna. Annars er stóri blautpokinn frá La Petite Ourse mjög rúmgóður og hentar vel ef þið viljið geta geymt meira magn.
  • Í taubleyjuskiptitöskunni ertu með hreinar bleyjur og allt hitt dótið sem þú notar venjulega. Á ferðalögum er maður þó mikið að handfjatla allskonar farangur og því er gott að hafa extra gott skipulag. Við mælum með t.d skjóðum (e.pods) til þess að nota sem “mini” skiptitösku til þess að hafa hreinu bleyjurnar í og sem er auðvelt er að kyppa með úr stærri skiptitöskunni. Hún er líka með þæginleg upp á skipulagið að gera ofan í skiptitöskunni sjálfri.
  • Þó þið hafið aðgengi að þvottavél þá þýðir það ekki að þið hafið aðgengi að þurrkara.  Gott er að hafa þvottasnúru með til að setja upp ef þarf, og ekki gleyma klemmum!
  • Einnig er gott að hafa brúsa af Sticky Stopper frá Nimble til þess að þrífa óhreina fleti í kringum skiptin, en vökvinn kemur í þæginlegum brúsum til þess að hafa með á ferðinni og hreinsar allt mjög auðveldlega og er alveg laus óæskileg eiturefni. Sticky stopper er einnig fáanlegur í ferðastærð sem hægt er að hafa með í flug! Við mælum einnig heilshugar með handsótthreinsinum Germ Zapper frá Nimble til að spritta stórar sem smáar hendur.
  • Ekki gleyma að taka þvottaefni með sem þið notið venjulega í tauið. Nappy Lover frá Nimble kemur í lokuðum brúsa og hentar því vel fyrir ferðalög.

Fyrir utanlandsferðalagið

Við trúum á einfaldleika og innri frið. Persónulega myndum við nota einnota bleyjur í fluginu sjálfu, sérstaklega ef þið eruð að fara í löng flug eða tengiflug. Að ferðast langt með börn er nógu stressandi fyrir! Það er einfaldara fyrir alla - þú vilt líklega nýta handfarangursheimildina þína í annað en taubleyjur… hvað þá skítugar taubleyjur. 

En þið ráðið því!

  • Ef þið viljið taujast í fluginu sjálfu þá eru einnota renningar (e.liners) algjör skyldueign til þess að meðhöndla kúkaskipti betur.  
  • Stór PUL poki með tveimur hólfum (eins og Pul Pokinn frá La Petite Ourse). Eitt hólf fyrir skítugt og annað fyrir hreint. 
  • Aftur mælum við heilshugar með brúsa af Sticky stopper til þess að þrífa óhreina fleti, SÉRSTAKLEGA inná skipitiborði inni í flugvélum og á flugvöllum og Germ Zapper til að spritta hendur.
  • Kortleggðu hvar og hvenær þú kemst í þvottavél og athugaðu sérstaklega hvort að vélin hiti vatnið. Á Íslandi tökum við ekki annað í mál en að þvottavélin hiti upp vatnið en það er annað upp á teningnum víða í heiminum. Ef vélin býður ekki upp á heitt vatn þá skaltu búast við því að þurfa að þvo eitthvað í höndum áður en það er síðan sett í vél. En það er bara gaman! Smelltu hér til að skoða þvottarútínu sem krefst handþvottar.
  • Ef þú ert að fara á stað þar sem er mjög rakt þá gæti verið sniðugt að endurhugsa innleggin sem þú ætlar að nota. Það er hægt að kaupa góðar gasbleyjur mjög ódýrt, en þær eru fljótar að þorna undir sól og í röku umhverfi. Við mælum með að taka nokkrar gasbleyjur með til þess að setja í vasa á meðan venjulegu innleggin þín eru að þorna… bara til vonar og vara. 
  • Aftur, ekki gleyma uppáhálds þvottaefninu þínu en það getur verið mjög erfitt að redda sér hentug þvottaefni í útlandinu. 

 

Taubleyjur í útlöndum


Erum við að gleyma einhverju? Endilega skildu eftir athugasemd í kommentum og góða ferð!

Athugasemdir

Vertu fyrst/ur til að skrifa athugasemd

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.