Fara yfir í aðalefni
Ullarpakki
Ullarpakki
Ullarpakki
Ullarpakki

Ullarpakki

Vörulýsing

Við vitum flest öll að ullin er alveg einstök. Hún er náttúruleg, hún andar og hún hrindir frá sér bakteríum. Ull er án alls vafa náttúrulegasti og umhverfisvænasti bleyjukosturinn sem völ er á. Með því að velja ull, bambus, hemp, lífrænan bómul sem bleyju á barnið þitt tryggir þú því umhverfisvænt og náttúrulegt upphaf. Hvað gæti mögulega verið betra en það?

Nánar um vörurnar

Snap-in ullarskeljar: Snap-in-One (SIO) ullarskeljarnar frá Puppi eru þéttofnar úr ítalskri merino ull og einstaklega þunnar og mjúkar. Þær koma í tveimur stærðum: OS (6-15 kg) og OS+ (9-18kg). SIO stendur fyrir snap-in-one sem þýðir að inn í bleyjunni eru smellur fyrir innlegg og henta betur börnum sem eru byrjuð að borða og kúka sjaldnar.

Bleyjurnar eru saumaðar á lítilli saumastofu í Póllandi og eru náttúrulegar og niðurbrjótanlegar frá A-Ö. Meira að segja teygjurnar eru GOTS vottaðar! Bleyjurnar eru saumaðar af mikill vandvirkni og falleg smáatriði eins og fallegir skrautsaumar eru í hverri bleyju.

Skeljarnar koma í tveimur stærðarflokkum: OS 6-15kg og OS+ 9-18kg

Snap-in innlegg frá Bare and Boho

Bambus: Bambus-bómullarblanda með fljótþornandi flís sem efstalag (stay-dry). Þetta innlegg kemur frá náttúrulegri uppsprettu, bambusplöntunni er fer í gegnum umfangsmikla vinnslu til að umbreyta plöntunni í trefjar. Bambus innleggin frá Bare and Boho eru blandaðar með lífrænni bómull og er einstaklega rakadræg. Auk þess er þunnt flíslag efst á innlegginu svo litla skinnið finni fyrir sem minnstri vætu, öfugt við t.d. hemp innleggin.

Hemp: „Eco Warrior“ lífræna hamp bómullarblandan er úr sjálfbærum og lífrænt ræktuðum trefjum sem gerir það að verkum að innleggið er náttúrulegra og minna unnið. Þetta er einnig harðgert efni sem endist vel. Vegna þess hve lítill hampurinn er unninn hefur hann tilhneigingu til að stífna þegar hann þornar og getur því verið harður og vel formaður en hefur þann eiginleika að mýkjast þegar hann hitnar við húð barnsins.

Þvottur og umhirða

Mikilvægt að hafa í huga

  • Fyrir fyrstu notkun er mikilvægt að setja skelina í lanólínlögur a.m.k. 2x
  • Viðra skelina eftir hverja notkun (gott að eiga tvær ullarskeljar og viðra til skiptis)
  • Passa að vinda aldrei ull né setja í þurrkara. Best er að pressa vætuna úr í t.d. handklæði.
  • Þurrkist á flötum stað. 

 Þvottaleiðbeiningar

1. Byrjaðu á því að fylla fötu eða vaskinn af ilvolgu vatni, nóg til að umkringja ullarskelina. Ekki heitara en 30 gráður.

2. Settu 1/4 úr teskeið af lanolíni fyrir hverja skel í venjulegan bolla, bættu svo Poppet ilmmola út í eða einni sprautu af barna- eða ullarsápu.

3. Bættu við nýsoðnu vatn og fylltu á bollann, hrærðu lausnina þar til lanolínið og sápan hefur leystst upp fyllilega - þegar lausnin verður mjólkurhvít er hún tilbúin.

4. Helltu vatninu úr bollanum ofan í vasann (Gakktu alltaf úr skugga um að lausnin sé ekki heitari en 30gráður - annars getur ullin þæfst)

5. Settu ullarskelina ofan í lausnina og leyfðu henni að liggja í minnst 4 tíma. 

Ef verið er að lanolínsera nýjar ullarskeljar skaltu endurtaka ferlið a.m.k. tvisvar í viðbót og óþarfi að þerra skelina á milli - bara gera nýjar lanolínlögur. Ef verið er að fríska upp á ullarskelina er nóg að setja einu sinni í lanolín lög.

6. Til að þerra skelina er gott að vinda hana í handklæði. Þú leggur skeilina á handklæði og rúllar upp handklæðinu og vindur passlega vel upp á þannig að vökvinn færist úr skelinni og í handklæðið. 

Svo skaltu leggja skelina á flatan stað fyrir þurrkun.

Myndbönd

Kostir við ullarbleyjur

  • Þú þarft færri skeljar. 4-5 skeljar eru nóg fyrir allt bleyju tímabil barnsins (!).
  • Þú þarft sjaldnar að þvo skeljarnar. Oft er nóg að þvo hverja skel á 3-4 vikna fresti
  • Ullarþvotturinn tekur mjög stutta stund, MAX 15-18 mínútur.
  • Ullin er 100% náttúruleg
  • Ull andar mjög vel og viðheldur réttu hitastigi í líkamanum svo börn hvorki svitna né soðna. Þeim verður heldur ekki kalt þó þau séu búin að pissa í bleyjuna.
  • Ullin er gerð vatnsheld með lanolini sem er bakteríudrepandi. Lanolin brýtur niður þvag í salt og vatn sem svo gufar upp. Það má segja að ullin sé nánast sjálfhreinsandi.
  • Það er sjaldan eða aldrei vond lykt af ullinni fyrr en eftir marga daga/vikur af notkun.
  • Ef vel er hugsað um ullina getur hún enst í mörg ár, mun lengur en bleyju skeljar úr PUL.

Um merkið

Puppi er pólskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur saumað margverðlaunaðar ullarbleyjur frá árinu 2013.

Það sem gerir Puppi vörurnar einstakar er að öll efnin sem bleyjan er unnin úr eru náttúruleg og niðurbrjótanleg. Meira að segja teygjurnar eru vottaðar og unnar úr bómull og náttúrulegu gúmmíi.

34.910 kr
41.070 kr
Virðisaukaskattur innifalinn.

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.