Fara yfir í aðalefni
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn
Ullarnæturpakkinn

Ullarnæturpakkinn

Vörulýsing

Þetta er án efa vinsælasti næturpakkinn sem við bjóðum uppá og fær okkar bestu meðmæli! Hámarkaðu þægindin fyrir barnið þitt og tryggðu því gott loftflæði með ullarnæturkerfi sem er laust við öll aukaefni!

Ullin er dásamleg næturlausn þar sem hún andar mjög vel og viðheldur réttu hitastigi í líkamanum svo börn hvorki svitna né soðna. Þeim verður heldur ekki kalt þó þau séu búin að pissa í bleyjuna. Það er sjaldan eða aldrei vond lykt af ullinni fyrr en eftir marga daga/vikur af notkun þar sem hún hrindir frá sér bakteríum sjálf. Rúsinan í pylsuendanum er að ull dregur í sig raka 30% af þyngd sinni án þess að blotna í gegn sé hún rétt lanólínseruð.

Afhverju næturbleyjur?

Börn eru yfirleitt lengur í næturbleyjunum, eða hátt upp í 12 tíma og þær þurfa því að halda vel svo þær dugi nóttina. Fæstar dagbleyjur eru með slíka rakadrægni. Því  mælum við með því að eiga gott næturkerfi. Enginn höfuðverkur og ekkert vesen um miðja nótt!

Nánar um pakkann

Ullarbuxur frá Disana
"Pull-Up" ullarbuxur er algjör skyldueign fyrir fjölskyldur sem nota fitted, gas eða prefolds bleyjur því þær bjóða upp á hina fullkomnu vatnsheldu "skel" eða þekjun yfir bleyjusvæði.  Buxurnar eru úr 100% lífrænni merino ull. 

Ullarbuxurnar frá Disana draga ekki í sig bakteríur, anda vel, halda hita þó þær blotni, og eru rakadrægar og teygjanlegar. Þær eru úr tvöföldu lagi af ofinni ull með stroffi utan um maga og um læri svo þær passi betur. Þær koma í 4 stærðum til þess að passa sem best og í fallegum litum. 

Fitted næturbleyjur frá Little Lamb

Fitted bambus bleyjurnar frá Little Lamb fást í fjórum mismunandi stærðum og eru  einstaklega rakadrægar. Sniðið á þeim er þægilegt til þess að vinna með og henta því næturvaktinni vel. 

Með hverri bleyju fylgir:
1x bambus búster (saumaður inn í fyrir stærð 2 og 3)
1x flísrenningur

Bambus fitted bleyjurnar frá Little Lamb minnka og verða stífari með tímanum en halda þó góðri rakadrægni svo lengi sem þær eru ekki orðnar of litlar á barnið. Koma bæði með riflás og án riflásar. Riflásinn er mjög þæginlegur en verður þreyttur með tímanum. Riflásinn á það einnig til að rífa í ullina og þess vegna inniheldur þessi pakki eingöngu fitted bleyjur án riflásar. Þær einfaldlega endast lengur þegar þær eru festar með aubleyjuklemmu eða taubleyjunælum. 

12.990 kr
Virðisaukaskattur innifalinn.

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.