Leigupakki - Ai2 bleyjur
Ai2 leigupakkinn er fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í taui og langar að kynnast Ai2 kerfinu og merkjunum sem við hjá Cocobutts bjóðum uppá.
Í pakkanum eru einnig mismunandi gerðir af innleggjum svo þú færð tækifæri á því að kynnast hverskonar innlegg hentar ykkar fjölskyldu best.
Ai2 kerfin okkar eru One size og ættu að passa flestum börnum frá 4,5-18 kg.
Í pakkanum eru:
Í pakkanum eru einnig mismunandi gerðir af innleggjum svo þú færð tækifæri á því að kynnast hverskonar innlegg hentar ykkar fjölskyldu best.
Ai2 kerfin okkar eru One size og ættu að passa flestum börnum frá 4,5-18 kg.
Í pakkanum eru:
- 1x Bare and Boho wipeable cover
- 1x Bare and Boho soft cover
- 6x bambus innlegg frá Bare and Boho
- 4x hemp innlegg frá Bare & Boho
- 1x bambus búster frá Bare & Boho
- 1x hemp búster frá Little Lamb
- 2x trifold frá Bare and Boho
- 1x Pul poki með tvöföldu hólfi frá Little Lamb
- 10x fjölnota blautþurrkur frá Little lamb
Pakkinn er alltaf "nýr" eða aldrei eldri en tveggja ára. Foreldar geta notað hann um allt land en viðkomandi þarf að greiða sendingagjald á milli staða
Hvernig virkar þetta?
- Á dagatalinu hér til vinstri geturðu séð þær dagssetningar sem pakkinn er laus til leigu. Ef dagssetningarnar eru rauðar þýðir það að pakkinn er frátekinn.
- Þú einfaldlega velur upphafsdagssetningu og dagatalið velur sjálfkrafa næstu 14 daga og tekur þá daga frá fyrir þig á meðan þú gengur frá pöntunninni.
- Þú greiðir fyrir allan leigutímann: kr. 1790 fyrirfram og velur hvort þú viljir fá að sækja í ARIA verslun eða fá heimsent gegn gjaldi. Við sendum þér endursendingarmiða sem þú notar til að skila pakkanum.
- Við sendum þér leiðbeiningar í tölvupósti um hvernig skal meðhöndla bleyjurnar þegar við uppfyllum pöntunina og afhendum þér pakkann.
Skil og afbókanir
- Þú mátt afbóka pakkann með minnst þriggja daga fyrirvara og fá endurgreitt. Ef þú hættir við leiguna innan þriggja daga frá upphafsdagssetningu sem þú bókaðir fæst pakkinn ekki endurgreiddur.
- Þeir dagar sem nýtast ekki fást ekki endurgreiddir á leigutímabilinu.
Verð
- Tveggja vikna leiga kostar kr. 1790.- og samsvarar kr. 127,85.- á dag.
*Vinsamlegast kynntu þér leiguskilmálana okkar áður en þú bókar.


