











Þjálfunarpakki
Vörulýsing
Þjálfunarnærbuxurnar frá Alva baby hafa notið vaxandi vinsælda hjá okkur og ekki að ástæðulausu! Þær passa börnum frá c.a. 10-20 kg, vernda fötin, taka allt að tvö pissuslys og koma í ótrúlega skemmtilegum munstrum sem bæði gleðja og styrkja sjálfstraust barnanna okkar! Getur maður beðið um meira?
Í þessum hagkvæma þjálfunarpakka færðu þrjár frábærar þjálfunarnærbuxur í þeim munstrum sem þú vilt og einn blautpoka að eigin vali og fría afhendingu.
Þjálfunarnærbuxur
Þessar sætu þjálfunarnærbuxur frá Alva baby eru með bambus innra lagi og vatnsheldu ytra lagi (PUL) og ætti að halda 1-2 slysum. Innra lag má vera uppvið húð barns og varnið finnur fyrir vætunni.
Ættu að passa börnum frá 18m-3 ára. Eru með smellum að framan til þess að hagræða stærðum betur en eru ekki með smellum á hliðum og breitt læraop sem kemur þó ekki niður á virkni buxnanna.
PCP vottun
Engin BPA, falöt, eða blý.
Blautpoki
Frábærir blautpokar fyrir heimilið, skiptitöskuna og leikskólann!
Tvö hólf, eitt fyrir þurrt og hitt fyrir óhreint.
Frábær dagspoki fyrir bleyjur, þjálfunarnærbuxur og auka föt. Einnig fyrir svo margt annað eins og fyrir sundferðina, blaut föt og fleira! Tekur allt 6 bleyjur.
Stærð:30cm x 36cm
PCP vottun
Engin BPA, falöt, eða blý.
Merkið
Einfaldar og hagkvæmar vörur sem geyma allt sem þú mögulega þarft til þess að leiða farsælt taubleyjulíf. Alva Baby er kínverskt merki og eru vörurnar saumaðar þar.