Þær hjá cocobutts eru með frábært úrval af ýmsum bleyju kerfum og aukahlutum að allir ættu að finna eitthvað sem hentar þeim og þær hjálpa þér með það hvort sem það er á netnámskeiðinu eða í persónu. Frábær verslun í alla staði!
Vörurnar, þjónustan og viðmótið frá þeim hjá Cocobutts er óviðjafnanlegt! Mæli svo mikið með að versla hjá þeim, ég hef alltaf gengið sátt og sæl frá kaupum hjá þeim. Ef þú ert að spá í að versla taubleyjur eða eitthvað því tengt þá mæli ég 100% með Cocobutts❤️
Ég mæli svo mikið með þessari frábæru verslun. Æðislegar vörur, mjög vandaðar. Þjónustan góð og þær alltaf tilbúnar til að fræða og aðstoða og hafa greinilega mikinn áhuga á því sem þær eru að gera. Fljótar að afgreiða og senda.
Við elskum LL fitted næturbleyju systemið! Klikkar aldrei 🤝🏻 Mæli með!
Takk fyrir frábæra þjónustu
Ég get ekki peppað nýburapakkann nógu mikið! Svo ótrúlega veglegur svo að maður fær alvöru tilfinningu fyrir því að vera með taubleyjur (og sjá að það er ekkert mál). Bleyjurnar pössuðu allar svo vel á hann svona lítinn og snilld að fá poka og þurrkur með líka. Við höfum svo haldið áfram í taubleyjum eftir nýburapakkann og elskum allar vörurnar sem við höfum verslað hjá cocobutts (okkur finnst þær í alvöru betri en þær sem við höfum verslað annarsstaðar)
Svo eru Elín og April líka algjörir snillingar með heiðarlegar ráðleggingar og super snögga þjónustu, og kunna greinilega að velja aðeins topp vörur í verslunina sína!
Pepp, pepp og 5 stjörnur!