Fara yfir í aðalefni
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL
Ai2 ullarskeljar - XL

Ai2 ullarskeljar - XL

5.990 kr
Virðisaukaskattur innifalinn.
  • Timeless Elegance
  • Forest Flower

Vörulýsing

Snap-in-One (SIO) ullarskeljarnar frá Puppi eru þéttofnar úr ítalskri merino ull og einstaklega þunnar og mjúkar. Þær koma í tveimur stærðum: OS (6-15 kg) og OS+ (9-18kg). SIO stendur fyrir snap-in-one sem þýðir að inn í bleyjunni eru smellur fyrir innlegg og henta betur börnum sem eru byrjuð að borða og kúka sjaldnar.

Nánar um vöruna

Þessi bleyjuskel er saumuð úr ítalskri merino ull og er ullin ofin á þann hátt að skelin er mjög þétt en jafnframt ótrúlega þunn og mjúk.

Bleyjurnar eru saumaðar á lítilli saumastofu í Póllandi og er hægt að sjá allt vinnsluferlið á instagram síðu Puppi diapers. Bleyjurnar eru saumaðar af mikill vandvirkni og falleg smáatriði eins og fallegir skrautsaumar eru í hverri bleyju.

Innlegin frá Bare & Boho passa fullkomlega inn í Puppi bleyjurnar. Einnig er hægt að nota prefolds, preflats og fitted bleyjur en þá mælum við með að fara upp um stærð og nota skel í stærð OS+. 

Efni og leiðbeiningar

  • Efni: 100% merino ull
  • StærðirOne size  (6-15 kg)/(13-33 lbs)  One size PLUS (9-18 kg)/(19,5-39,5 lbs)
  • ÞvottaleiðbeiningarHandþvottur með ullarsápu. Viðra skelina eftir hverja notkun. Sjá ullarþvottaleiðbeiningar HÉR.
  • Fyrir fyrstu notkun: Setja skelina í lanólínlögur
  • Vottanirteygjur: keyptar frá GOTS- vottuðum framleiðanda(Global Organic Textile Srtandard), smellur: CPSIA

Myndbönd

Kostir við ullarbleyjur

  • Þú þarft færri skeljar. 4-5 skeljar eru nóg fyrir allt bleyju tímabil barnsins (!).
  • Þú þarft sjaldnar að þvo skeljarnar. Oft er nóg að þvo hverja skel á 3-4 vikna fresti
  • Ullarþvotturinn tekur mjög stutta stund, MAX 15-18 mínútur.
  • Ullin er 100% náttúruleg
  • Ull andar mjög vel og viðheldur réttu hitastigi í líkamanum svo börn hvorki svitna né soðna. Þeim verður heldur ekki kalt þó þau séu búin að pissa í bleyjuna.
  • Ullin er gerð vatnsheld með lanolíni sem er bakteríudrepandi. Lanolin brýtur niður þvag í salt og vatn sem svo gufar upp. Það má segja að ullin sé nánast sjálfhreinsandi.
  • Það er sjaldan eða aldrei vond lykt af ullinni fyrr en eftir marga daga/vikur af notkun.
  • Ef vel er hugsað um ullina getur hún enst í mörg ár, mun lengur en bleyju skeljar úr PUL. Hún gæti í raun endað á barnabörnunum!

Um merkið

Puppi er pólskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur saumað margverðlaunaðar ullarbleyjur frá árinu 2013.

Það sem gerir Puppi vörurnar einstakar er að öll efnin sem bleyjan er unnin úr eru náttúruleg og niðurbrjótanleg. Meira að segja teygjurnar eru vottaðar og unnar úr bómull og náttúrulegu gúmmíi.

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)

Karfan þín

Karfan þín er tóm í augnablikinu.
Smelltu hér til að halda áfram að versla.