Fara yfir í aðalefni
Nýburaleigupakki
Nýburaleigupakki

Nýburaleigupakki

19.900 kr
Virðisaukaskattur innifalinn.
  • 1 mánuður (30 dagar)
  • 2 mánuðir (60 dagar)

Vörulýsing

Nýburaleigan er frábær leið til þess að nota taubleyjur strax frá upphafi á hagkvæman hátt.

Þú getur nýtt þér nýburaleigaupakkana okkar hvar sem þú býrð á landinu, en greiðir eingöngu sendingarkostnað aukalega. Þú færð leiðbeiningar varðandi endursendingu þegar þú færð pakkann afhentan og ámininngu þegar líða fer að skilum. Allir sem leigja nýburaleigupakka hjá okkur fá rafrænan leiðbeiningarbækling með praktískum upplýsingum.

Fyrsti mánuðurinn fæst ekki endurgreiddur (30 daga leiga), en ef þú sérð ekki fram nýta tveggja mánaða leigu (60 daga) þá máttu skila pakkanum fyrr og fá inneignarnótu fyrir dagana sem þú sérð fram á að nýta ekki af seinni mánuðinum.

Pakkinn er alltaf "nýr" eða nýlegur. Við tökum skeljar, innlegg og aukahluti úr umferð sem okkur finnst fara sjá verulega og setjum nýtt í staðinn. Nýburaleigupakkarnir okkar innihalda því alla jafna mismikið notaðar bleyjur og aukahluti.

ATH: Með því að bóka nýburapakkann samþykkið þið sjálfkrafa leiguskilmálana

Hvað er í nýburaleigupakkanum?

15 x AIO nýburableyjur frá Elskbar
5  x Ai2 wipeable nýburaskeljar frá Bare and Boho með bambus innleggjum
5 x Ai2 softcover nýburaskel frá Bare and Boho með bambus innleggi og búster
10x Auka bambus innlegg með ísaumuðum flísrenning frá Bare and Boho
5x Auka hemp innlegg frá Bare and Boho
1x Stór Deluxe blautpoki frá La Petite Ourse (Vinsælasti aukahluturinn okkar)
1x Stór blautpoki með tvöföldu hólfi í skiptitöskuna
15x Fjölnota þurrkur

Skil og afbókanir

Ef þú velur að fá pakkann sendan með Dropp eða Póstinn þá færðu pakkann í endurnýtanlegum umbúðum ásamt skilamiða sem þú greiðir fyrir þegar þú pantar nýburapakkann. Við hvetjum þig til að geyma umbúðirnar og skilamiðann vel á meðan þú ert með nýburapakkann í notkun. Við gerum ráð 5 dögum aukalega sem leigjendur geta nýtt sér til að skila pakkanum. Þá reiknum við með að leigjandi sendi pakkann af stað í síðasta lagi á síðasta leigudegi og hann sé búinn að skila sér í vöruhús Dropp eða Póstsins eigi seinna en 5 dögum síðar. Við fáum tilkynningu þegar pakki hefur verið móttekinn fyrir skil.

Ástand nýburaleigupakka

Við ástandsskoðum bleyjurnar við hver skil og göngum úr skugga um að bleyjurnar eru hreinar og pakkinn tilbúinn til notkunar fyrir næsta leigjanda. Við tökum pakkann í djúphreinsun ef grunur leikur á um uppsafnað þvottaefni í bleyjunum og ábendingar hafa borist um leka. 

Við vekjum athygli á því að nýburaleigupakkarnir eru notaðir og endurnýttir af öðrum fjölskyldum. Vegna sterkra litarefna í mjólkurhægðum ungbarna getur stundum komið fyrir að liturinn festist í innleggjunum. Þó innleggin og skeljarnar séu að hluta til blettótt þá eru þau ekki skítug. Við reynum eftir fremsta megni að setja innlegg og skeljar sem eru blettótt við skil í aukaþvott og svo í sólbað þangað til liturinn hefur að mestu horfið, en það tekst ekki alltaf að ná litnum úr. 

Verð og innborgun

Hægt er að bóka nýburaleigupakkann í 30 eða 60 daga.

Verð
30 dagar kr 19.900
60 dagar kr 39.900  

Innborgun
Þú greiðir helminginn (50%) inn á pöntunina þegar þú bókar og seinni helming (50%) þegar þegar þú sækir pakkann eða áður en við sendum hann til þín. Þú getur einnig valið að staðgreiða.

Hvernig virkar þetta?

  • Á dagatalinu hér á síðunni geturðu séð þær dagssetningar sem nýburapakkinn er laus til leigu.
  • Þú velur hvort þú viljir leigja 30 eða 60 daga og hvort þú viljir leigja fleiri en einn pakka. Einn pakki er sjálfvalinn. 
  • Þú getur hafið leiguna frá hvaða degi sem er merktur SVARTUR
  • Veldu upphafsdagssetningu og dagatalið velur sjálfkrafa næstu 30 eða 60 daga og tekur þá daga frá fyrir þig á meðan þú gengur frá pöntuninni.
  • Þú greiðir 50% inn á bókunina við bókun og 50% við afhendingu eða staðgreiðir. Þitt er valið. 
  • Við sendum þér leiðbeiningar í tölvupósti um hvernig skal meðhöndla bleyjurnar þegar þú hefur greitt fyrir leiguna að fullu.

Leiguskilmálar

*Með því að bóka einhverja taubleyjupakka sem við höfum á leigu samþykkir leigutaki skilmála þessa.

Almennt
Cocobutts ehf. 
Kt. 5407210410
VSK númer 141839
Ljósheimum 10, 104 Reykjavík
info@cocobutts.is   

Leigutaki tekur þær vörur á leigu sem eru í innihaldslýsingu hverju sinni

Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að breyta innihaldi leigupakkanna án fyrirvara.

Verð, skattar og gjöld
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Taubleyjuleigan fyrir nýbura er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.  

Sendingarkostnaður og valmöguleikar
Vefpóstur og/eða SMS er sent þegar pöntun er tilbúin til afhendingar. Verslunin er lokuð alla rauða daga né annað sé tekið fram.
  1. Fjölskylduland, Dugguvogi 4 (Opið 10:00-18:00 alla daga. Verð: 0 kr.
  2. Heimsending út um allt land með Íslandspósti eða Dropp. Vörur eru póstlagðar 2-5 dögum fyrir áætlaða afhendingu og jafnvel fyrr ef pakkinn skilast fyrr frá fyrri leigjanda. Afhending 1-3 virkir dagar. Verðið er breytilegt eftir verðskrá Póstsins og kemur fram við greiðslu.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest eða næsta virka dag ef greiðsla berst eftir klukkan 17:00. Þú getur fengið vörurnar sendar en ef þú kýst að sækja getur þú gert það án endurgjalds í verslun okkar, þitt er valið. 

Kemur það upp að vara sé í útleigu eða geti ekki verið afhend á réttum tíma vegna einhverra ástæðna mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef afhendingardagssetning lendir á helgi eða á gulum eða rauðum degi áskiljum við okkur rétt til að seinka afhendingu eða póstlagningu til næsta virka dags.

Verð og greiðsla
  1. Leiguverð
    Leiguverðið á nýburableyjupakka er breytilegt eftir hversu langt tímabil leigjandi velur. 1 mánuður kostar 19.900 kr og 2 mánuðir 39.900 kr. 
  2. Innborgun
    Leigutaki greiðir 50% heildarupphæðarinnar fyrir leigutímabilið sem hann velur við bókun og svo 50% við afhendingu eða staðgreiðir við bókun.
  3. Afbókun 
    Ef leigutaki afbókar með minna en viku fyrirvara fæst innborgunin ekki endurgreidd. Ef leigutaki hefur staðgreitt leigupakkann fær hann helminginn endurgreiddan við afbókun með minna en viku fyrirvara.
  4. Afhending
    Við afhendingu eða fyrir póstlagningu greiðir leigutaki eftirstöður eftir því hvað hann ákveður að hafa bleyjurnar lengi á leigu (minnst 30 dagar, mest 60 dagar). Ef pakkinn er sóttur í verslun greiðir leigutaki eftirstöðurnar áður en hann fær pakkann afhentan.
  5. Leigutímabil og greiðslur eftirstöðva
    -Leigutímabilið hvorki lengist né styttist þó leigjandi sæki pakkann seint.
    - Ef leigutaki hefur ekki greitt eftirstöðvarnar einni viku eftir að upphafsdagssetning hefst áskiljum við okkur rétt til að afbóka pöntunina og tilkynna pakkann lausan til leigu án þess að endurgreiða innborgunina.
  6. Leiðbeiningar
    Við sendum leiðbeiningar um leið og pakkinn hefur verið bókaður.
Endurgreiðslur og breytingar á bókun
  • Cocobutts ehf áskilur sér rétt til að endurgreiða ekki innborgunargjaldið og halda eftir 50% af staðgreiðsluverði sé pakkinn afbókaður minna en 1 viku fyrir áætlaða afhendingu.
  • Breytingar á tímabili bókunnar má framkvæma með a.m.k. viku fyrirvara. Ef leigutaki vill stytta leigutímann og skila pakkanum fyrr skal hann hafa samband við okkur með tölvupósti info@cocobutts.is með a.m.k. viku fyrirvara. 
  • Hægt er að fá hlutfallslega endurgreitt fyrir 60 daga daga leigu eftir að fyrstu 30 dagarnir eru liðnir.
Gildistími
Gildistími samnings varir frá upphafsdegi leigu og þar til leigutaki skilar pakkanum. 


Skyldur Cocobutts ehf
  • Gengur úr skugga um að innihald taubleyjupakkanna sé heilt, hreint og tilbúið til notkunar áður en þeir fara í útlán til viðskiptavina.
  • Gerir ástandsskoðun á taubleyjupökkum eftir þriðja hvern viðskiptavin.
Skyldur leigutaka
  • Að fara eins vel með varninginn og hann getur:
  • Þrífur bleyjurnar samkvæmt þvottaleiðbeiningum leigusala eða eins og segir til um á þvottaleiðbeiningum á varningi og sér til þess að ganga frá taubleyjunum samkvæmt leiðbeiningum leigusala áður en þær eru settar í þvott.
  • Skilar innihaldi pakkans hreinu og heilu og passar upp á að ekkert vanti í pakkann þegar honum er skilað.
Bruni og roði
  • Cocobutts ehf ber ekki ábyrgð á bruna, roða, kláða eða öðrum heilsufarslegum kvillum  sem kunna að myndast vegna ofnæmis eða lélegrar þvottarútínu.
  • Cocobutts ehf mælist til að leigutaki þrífi bleyjurnar sjálfur áður en hann byrjar að nota þær þó þær kunni að vera hreinar við afhendingu. 
 Skemmdur eða týndur varningur
  • Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 40.000 kr. ef leigutaki skilar ekki taubleyjupakkum eins og þeir leggja sig og ekki tekst að ná sambandi við hann
  • Leigusali áskilur sér rétt til bótakröfu að hámarki 3000 kr. per varning sem tnist, skemmist eða skilast í slæmu ástandi sem ekki má rekja til slits vegna almennrar notkunar.
  • Leigusali áskilur sér rétt til þess að endurgreiða ekki þá daga sem leigutaki ntir ekki taubleyjupakkana ef eitthvað af ofangreindu á við.
  • Leigutaki ber ekki ábyrgð á sliti varningsins vegna almennrar notkunar.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.  

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur (ef fyrirtækið er með lögheimili í Reykjavík) eða Héraðsdómi Reykjaness (ef fyrirtækið er með lögheimili í t.d. Garðabæ eða Kópavogi)

*Með því að bóka einhverja taubleyjupakka sem við höfum á leigu samþykkir leigutaki skilmála þessa.


 

    Customer Reviews

    Based on 5 reviews
    100%
    (5)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    0%
    (0)
    G
    Gunnhildur Guðnýjardóttir (Kopavogur)
    Flott byrjun

    Ég leigði nýburapakkan í tvo mánuði og var mjög ánægð með nánast allt í pakkanum en Elskbar bleyjurnar voru klárlega í miklu uppáhaldi. Litle Lamb eru líka frábærar næturbleyjur. Þetta var mjög góð byrjun á taubleyju lífinu og kom manni í gírinn.
    Mæli 100% með!!!

    A
    A.K. (Reykjavik)
    Frábær kostur

    Þessi leigupakki er algjör snilld og hefur nýst okkur svo vel. Munar svo miklu að þurfa ekki að nota bréfbleyjur á lítinn nýfæddan bossa með öllu ruslinu sem fylgir því, fyrir utan hvað tauið er margfalt betra fyrir barnið OG hvað bleyjurnar eru sjúklega fallegar 😍

    A
    Aðalheiður Sigrúnardóttir (Hveragerdi)
    Ótrúlega góð þjónusta.

    Frábær þjónusta og ótrúlega gott að geta prófað mismunandi tegundir af bleyjum.

    Á
    Árdís Drífa (Reykjavik)
    Ótrúlega sniðugt

    Nýburaleigupakkinn er búinn að vera algjör snilld fyrir okkur. Við erum búin að læra inn á taubleyjur og finnst það alls ekki jafn mikið vesen og við héldum, okkur líður vel með að nota þær þar sem engin útbrot eða roði myndast á húð barnsins, bleyjurnar eru í réttri stærð akkurat fyrir fyrsta mánuðinn - en þar sem litli stækkar hratt verður hann vaxinn upp úr þeim við lok mánaðar sem gerir leiguna svo mikla snilld - algjörlega búið að spara okkur helling! Og líka þar sem litli gaur er yfirleitt bara á bleyjunni þar sem hann er búinn að vera mikið í fanginu og mjög heitfengur þá er náttúrlega extra kjút að hafa hann í taubleyju en ekki ljótri pappableyju :)

    S
    S.D. (Reykjavik)
    Heilbrigður krúttbossi :)

    Ég byrjaði í taui með annað barn fyrir algjöra slysni þegar ég fann Cocobutts á popup markaði. Ég var kasólétt og sá fullt af krúttlegum bleyjum sem dró mig að ykkur í mjög fróðlegt og skemmtilegt spjall. Ég vissi ekki að taubleyjur væru búnar að þróast svona mikið en ég er all in fyrir allt sem er fjölnota til þess að vernda umhverfið okkar. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um og keypti startpakka og bókaði leigu á nýburableyjupakka frá fæðingardegi barnsins sem var sendur heim kvöldið sem við komum heim frá fæðingarheimilinu. Nýburableyjurnar komu sér súper vel því þær pössuðu mikið betur og eru líka svo krúttlegar og kósý á svona pínulítin bossa. Við notuðum þær þar til hún var 6 vikna en þá skiluðum við þeim og byrjuðum að nota startpakkann sem er mjög skemmtilegur því í honum eru mörg mismunandi kerfi sem við erum að prófa og sjá hvað virkar best á litla krúttbossann okkar. Bossinn er laus við roða og það kemur varla fyrir að það leki og einfalt að þrífa og ganga frá. Við prófuðum aðeins einnota þegar við fórum í ferðalag og í langa heimsókn og komumst að því að þær leka frekar og það kom strax roði á bossann (man það líka með fyrra barnið að það var miklu oftar roði á bossanum). Ég var fyrst smá stressuð að þetta væri flókið að læra fyrir okkur foreldrana en þetta var ekkert mál og þið eruð líka svo góðar að útkýra allt bæði á heimasíðunni og í símann eitt skiptið þegar ég þurfti hjálp. Núna áðan var ég líka að ljúka gjaldfrjálsu byrjendanámskeiði hjá ykkur sem var snilld til þess að eiga farsælt taubleyjulíf og það verður aldrei aftur snúið, við erum að elska þetta. Ég er líka komin með fjölnota lekahlífar og dömubindi frá ykkur því ég fékk sjokk fyrstu dagana við tilhugsunina um allt sem væri að fara í ruslið. Þið eruð að gera frábæra hluti með litlu sætu búðinni ykkar og með því að fræða fólk. Við erum með ykkur í liði í team taubleyjur, let’s go!

    Karfan þín

    Karfan þín er tóm í augnablikinu.
    Smelltu hér til að halda áfram að versla.